Drekaleyfin tvö talin marka skýr kaflaskil Þorgils skrifar 5. janúar 2013 08:00 Drekasvæðið Guðni Jóhannesson Steingrímur J Sigfússon Ola Borten Moe Olíumálaráðherra
Orkustofnun gaf í gær út fyrstu tvö leyfin til rannsókna og vinnslu á Drekasvæðinu svokallaða, suður af Jan Mayen. Þetta er í fyrsta sinn sem slík leyfi eru gefin út hér á landi, en norska ríkisolíufélagið Petero er aðili að báðum verkefnunum. Rannsóknir taka nú við en það kemur að öllum líkindum ekki í ljós fyrr en eftir fimm til sex ár hvort olíu- eða gaslindir er að finna á svæðinu og rúmur áratugur er í að vinnsla hefjist, gangi allar áætlanir eftir. Þá munu hóparnir tveir hafa rétt til vinnslu, að uppfylltum ýmsum skilyrðum. „Alvörustimpill“ Guðni Jóhannesson orkumálastjóri segir þessa leyfisúthlutun vera afar mikilvægt skref. „Þetta er afar mikilvægt því að þessi fyrirtæki eru nú búin að skuldbinda sig til að halda áfram rannsóknum og í gegnum þau munum við fá stóraukna þekkingu á svæðinu, fyrir utan þann möguleika sem við höfum auðvitað að þarna finnist sannarlega eitthvað.“ Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra tekur undir það að hér sé um ákveðin tímamót að ræða. „Það er sannarlega kominn meiri alvörustimpill á leit og rannsókn en áður. Þarna eru komnir sterkir aðilar sem ráða við verkefnið.“ Leyfin eru tímasett og er skýrt kveðið á um rannsóknarferlið. Hjá hópnum sem Valiant Petrol fer fyrir er leyfið til tíu ára. Fyrsta rannsóknartímabilið er til fjögurra ára, þar sem farið verður yfir fyrirliggjandi gögn og nýjum gögnum um jarðlög safnað með endurkaststækni. Á öðru tímabili, frá 2017 til 2020, skal safna þrívíddargögnum af jarðlögum og á síðasta tímabilinu er gert ráð fyrir tilraunaborunum. Hjá Faroe Petroleum-hópnum er leyfið til sjö ára. Fyrsta tímabilið er tvö ár þar sem farið skal yfir og endurmeta fyrirliggjandi gögn af svæðinu en á öðru tímabilinu, sem er einnig til tveggja ára, skal gera nýja endurvarpsrannsókn og safna gögnum af hafsbotni áður en tekið er til við rannsóknarboranir á árunum 2017 til 2020. Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Kolefnis, sem fer fyrir fyrrnefnda hópnum, segist í samtali við Fréttablaðið fagna áfanganum. Nú taki við rannsóknavinna sem útheimti talsverð fjárútlát. Hann giskar á að kostnaðurinn við fyrstu tvö stig rannsóknanna gæti verið á bilinu tíu til tuttugu milljónir Bandaríkjadala, en tilraunaboranirnar gætu kostað um 200 milljónir dala. „Allt er þetta vissulega kostnaðarsamt en vinnsluleyfið er forsenda þess að leggja út fyrir slíkum rannsóknum.“ Þátttaka Noregs Aðkoma Norðmanna vekur athygli, en þetta er í fyrsta sinn sem þeir taka beinan þátt í verkefnum utan eigin landgrunns. Steingrímur segir það ekki síður marka tímamót. „Það að Norðmenn komi inn í þetta verkefni af krafti er mikill styrkur. Það bæði þéttir samstarfið milli Íslands og Noregs og eins fáum við aðgang að þeirra tækni og þekkingu og ekki síst hvað varðar umhverfismál, öryggi og annað slíkt.“ Steingrímur bætir við að Norðmenn séu að hefja sama ferli sín megin á Drekasvæðinu og það gefi ákveðna öryggistilfinningu, til dæmis þegar komi að því að hefja vinnslu. Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Íslensks kolvetnis, sem er með Faroe Petroleum, segir aðkomu Petoro hafa gefið verkefninu meira vægi. „Það gladdi okkur mjög að Petoro ákvað að vera með og það sannfærði okkur um að við erum ekki með neinar ranghugmyndir um svæðið.“ Sterkari umhverfisviðmið Eitt stærsta atriðið varðandi olíu- eða gasvinnslu á norðurslóðum er umhverfisþátturinn og hætta á mengunarslysum. Steingrímur segir að áhættan sé ljós. „Þarna verður stigið varlega til jarðar og gerðar ýtrustu kröfur. Það sem miklu máli skiptir fyrir Ísland er að nota tímann vel á meðan rannsóknir standa yfir í næstu fimm til sjö árin eða svo, að við búum okkur vel undir að takast á við næstu skref, hugsanlega hvort eigi að leyfa boranir.“ Orkumálastjóri segir brýnt að huga að umhverfismálum. Miðað verði við norskar reglur, sem hann segir þær ströngustu í heimi. „Hins vegar má taka fram að þrátt fyrir að svæðið sé norðan heimskautsbaugs er það í Golfstraumnum þannig að um tiltölulega hlýtt og ísfrítt svæði er að ræða. Þetta eru í sjálfu sér ekki erfiðari náttúrulegar aðstæður en til dæmis í Norðursjó eða Barentshafi.“ Vonir og væntingar Þótt miklar væntingar séu gerðar til Drekasvæðisins og hugsanlegrar olíuvinnslu þar og áhrifa sem slíkt gæti haft á íslenskt efnahagslíf eru enn mörg ár þar til ljóst verður hvort olía er þar og hvort hún verður í vinnanlegu magni. Kristján hjá Íslensku kolefni segir til dæmis margt enn á huldu þó að ýmislegt lofi góðu. „Þetta er verkefni til langs tíma þannig að þolinmæði er undirtónninn. Vonin er vissulega fyrir hendi en við vitum ekki hvernig fer.“
Mest lesið Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump stendur loks við stóru orðin Erlent „Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Innlent Lofar látum og vísar gagnrýni Samtaka atvinnulífsins á bug Innlent Brunaði austur til að finna litla frænda Innlent Belgar komu í veg fyrir samþykkt um nýtingu rússneskra eigna Erlent Trump slaufar öllum viðræðum við Kanada út af sjónvarpsauglýsingu sem fór fyrir brjóstið á honum Erlent Þjóðin klofin í afstöðu til þess hvort jafnrétti kynjanna hafi verið náð Innlent Dóra Björt stefnir á formanninn Innlent Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Innlent Fleiri fréttir Sennilegt að ástand Þingvallavegar hafi haft áhrif á aðdraganda banaslyss Miðla sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi til útlanda Bein útsending: Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði Dóra Björt stefnir á formanninn Þjóðin klofin í afstöðu til þess hvort jafnrétti kynjanna hafi verið náð Bein útsending: Umhverfismat vegna Sundabrautar kynnt Varnar- og öryggisstefna fyrir Ísland: Áhersla á Norðurslóðir, NATO og samstarf við Bandaríkin Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Flugumferðarstjórar aflýsa vinnustöðvunum á morgun og laugardag Lofar látum og vísar gagnrýni Samtaka atvinnulífsins á bug „Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Þriggja ára fangelsi eftir flug frá Berlín Fann aldagamlan mun, brást hárrétt við og langar að gerast fornleifafræðingur Brunaði austur til að finna litla frænda „Þá erum við að tala um 60 milljarða í töpuðum útflutningstekjum“ Kvíðið starfsfólk, handtökur og fornminjafundur Starfsmenn Kubbs og Terra grunaðir um samráð Lúkas Geir áfrýjar eins og hinir tveir Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Landsnet fagnar sigri í baráttu við landeigendur Falsað myndband af kennara og nemanda fór í dreifingu Nýr lögreglustjóri á Austurlandi verði skipaður á allra næstu dögum Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins „Við finnum fyrir mikilli spennu frá heimsbyggðinni“ Verktakar hafi greinilega nóg því þeir kjósi frekar að bíða en lækka Pallborðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet Guðmundur til ráðherra og framkvæmdastjóri HK tekur við Sjaldan eins erfitt að kaupa fasteign og konur undirbúa verkfall Titringur í hreppnum vegna lögheimilisflutninga Sigmundur seinn: „Er þingmaðurinn í salnum?“ Sjá meira
Trump slaufar öllum viðræðum við Kanada út af sjónvarpsauglýsingu sem fór fyrir brjóstið á honum Erlent
Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda
Trump slaufar öllum viðræðum við Kanada út af sjónvarpsauglýsingu sem fór fyrir brjóstið á honum Erlent