Innlent

Konum fjölgar meira en körlum á Íslandi

Frá Kvennafrídeginum 2010. Fréttablaðið/Stefán
Frá Kvennafrídeginum 2010. Fréttablaðið/Stefán
Konum fjölgaði meira en körlum í fyrra, um 1,4 prósent á móti 0,03 prósentum karla, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Í byrjun árs voru landsmenn alls 321.857 og hafði fjölgað um 2.282 frá sama tíma árið 2012. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu hafði fjölgað um 2.081 á árinu, eða um 1,0 prósent. "Hlutfallslega varð fólksfjölgunin hins vegar mest á Vestfjörðum, þar sem fjölgaði um 1,1 prósent, eða 77 frá síðasta ári,“ segir Hagstofan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×