Innlent

Reyndi að bjarga félaga sínum úr fangaklefa

Lögregla tók ungan ökumann úr umferð á Selfossi upp úr miðnætti, þar sem hann reyndist ofurölvi og auk þess réttindalaus. Var hann vistaðaur í fangageymslu til að sofa úr sér.

Félagi hans vildi ekki una þeirri ráðstöfum lögreglunnar og kom á stöðina til að fá hann látinn lausan. Þar lét hann öllum illum látum uns lögreglumenn yfirbuguðu hann og gistir hann nú í næsta klefa við félaga sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×