Innlent

Flensan enn í mikilli dreifingu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Inflúensan er enn í mikilli dreifingu en fjöldi tilkynninga um inflúensulík einkenni jókst að nýju í síðustu viku, að því er fram kemur á vef Landlæknis. Aðferðir til að draga úr útbreiðslu smits, með því að hylja vit þegar hóstað er eða hnerrað og spritta eða þvo hendur, eru því ítrekaðar.

Samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítalans var inflúensan staðfest hjá alls 15 einstaklingum í síðustu viku, þar af voru 10 með svínainflúensu, fimm með inflúensu A og enginn með inflúensu B.

Enn er mikið um inflúensu í Evrópu, inflúensan var víða á uppleið, en samtímis dró úr henni í þeim löndum sem voru fyrst að ná toppnum. Hægt er að fylgjast með stöðunni í öðrum löndum Evrópu á heimasíðu sóttvarnastofnunar Evrópu ECDC, sjá hér.

Töluvert dregur nú úr greiningum á RS-veiru samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítalans, en einungis þrír einstaklingar greindust með staðfesta RS veirusýkingu í síðustu viku, sem er fækkun miðað við undanfarnar vikur. Lítið hefur verið um aðrar öndunarveirugreiningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×