„Auðvitað er þetta global warming“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 21. febrúar 2013 15:27 Garðeigandi í Reykjavík tók þessa mynd í morgun af runna sem var byrjaður að laufgast. Mynd/Steinunn Stefánsdóttir
Eitthvað er um að tré og runnar séu farin að bruma þrátt fyrir að enn sé febrúar, en veturinn á sunnanverðu landinu hefur verið afar mildur. Garðeigandi í Reykjavík tók þessa mynd í morgun þegar hann varð þess var að runni í garði hans var byrjaður að laufgast. Um er að ræða gljámispil, og bárust fréttastofu ábendingar um runna bæði í Reykjavík og á Austfjörðum sem eru óðum að færast í sumarbúning. Þröstur Eysteinsson sviðsstjóri hjá Skógrækt ríkisins segir þetta ekki óalgengt, enda fari veðurfar á norðurhveli jarðar hlýnandi. „Það eru tegundir hér á Íslandi sem fara mjög snemma af stað, en það eru helst tegundir frá mjög norðlægum slóðum og meginlandsloftslagi sem láta blekkjast í hlýindum að vetrarlagi og fara þá að vaxa." Þó Þröstur hafi litlar áhyggjur segir hann þó alltaf ákveðna hættu á frosti í apríl og maí, sem geta valdið skemmdum á tegundum sem farnar eru af stað. „Sumar tegundir eru viðkvæmar fyrir þessu en aðrar þola sæmilega frost þó þær hafi látið plata sig að vetrarlagi," segir Þröstur, og bætir því við að flestar aðaltegundirnar hér á landi hafi aðlagast vel og talsvert meiri hlýindi þurfi til þess að þær brjóti brum og laufgist. „En auðvitað er þetta „global warming". Þetta er það sem var spáð varðandi hnattrænar loftslagsbreytingar, að hér myndi hlýna verulega að vetrarlagi. Miðað við það sem ég hef fylgst með veðrinu þá er þessi febrúarmánuður á góðri leið með að slá hitamet. Og ef þetta heldur áfram í mars þá fara ýmsar tegundir að láta á sér kræla."
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira