Bergischer komst í dag á toppinn í þýsku b-deildinni í handbolta þegar liðið vann góðan heimasigur á meðan topplið TV Emsdetten tapaði á heimavelli. Íslendingaliðin höfðu því sætaskipti á toppnum en mikið þarf að gerast til þess að þau komist ekki upp.
Bergischer er með eins stigs forskot á Emsdetten og tíu stiga forskot á liðið í fjórða sætinu en þrjú efstu liðin tryggja sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Arnór Gunnarsson skoraði sjö mörk og var markahæstur í sínu liði þegar Bergischer HC vann 29-25 heimasigur á HC Empor Rostock. Fimn marka Arnórs komu af vítalínunni.
Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði fjögur mörk og Ernir Hrafn Arnarson var með tvö mörk þegar TV Emsdetten tapaði 23-24 á heimavelli á móti Hüttenberg.
Árni Sigtryggsson skoraði fjögur mörk þegar TSG Ludwigshafen-Friesenheim vann 28-24 útisigur á SG Leutershausen. Friesenheim-liðið er í 10. sæti þýsku b-deildarinnar.
Arnór markahæstur þegar Bergischer komst í toppsætið
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
