Lögðu hald á lítra af sterum - efnið merkt sem hnetuolía 20. febrúar 2013 14:45 Sterarnir sem lögreglan lagði hald á. Myndin er af vef tollgæslunnar.
Tollgæslan haldlagði í síðustu viku tæpan lítra af sterum, eða 950 millilítra, sem voru sendir til landsins frá Hong Kong. Þetta kemur fram á vef tollgæslunnar. Um var að ræða hreina stera í brúsa sem búið var um í pappakassa sem barst hingað í bögglapóstsendingu. Á fylgiseðli með sendingunni stóð að um væri að ræða hnetuolíu. Sterasendingin var stíluð á einstakling á þrítugsaldri á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakaði málið og handtók innflytjandann. Hann viðurkenndi að hafa ætlað sterana til sölu og telst málið upplýst. Tollgæslan hafði áður haldlagt tæki og tól til að steypa steratöflur og loka ambúlum, sem notaðar eru undir stera í sölu. Hver ambúla tekur um einn millilítra. Hreinir sterar eru gjarnan blandaðir allt að til helminga með olíu, eða notaðir til matvælagerðar, áður en þeim er komið í sölu - þannig að magnið sem tollgæsla haldlagði nú gæti numið allt að 2000 ambúlum í sölueiningum. Sterar eru ávanabindandi og geta haft margvíslegar aukaverkanir, sé um langtímanotkun á stórum skömmtum að ræða. Nefna má skerta stjórn á skapsmunum, svo sem árásarhneigð, ofbeldishneigð og pirring. Einnig lifrarskemmdir og aukna hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, þar á meðal heilablóðfalli.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira