Tollgæslan greinir mikla aukningu á innflutningi á sterum 20. febrúar 2013 15:24 Lögreglan sýnir hér stera sem hún lagði hald á.
Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, segir að embætti hafið orðið vart við töluverða aukningu á innflutningi á sterum hingað til lands síðustu misseri, bæði í vökvaformi sem og í pilluformi. Í síðustu viku lagði tollgæslan hald á um lítra af sterum sem voru sendir hingað með pósti en í innihaldslýsingunni var því haldið fram að um hnetuolíu væri að ræða. Hægt var að búa til 2000 ambúlur (en ambúla er ein neyslueining) úr vökvanum og því ljóst að um töluverð verðmæti er að ræða. „Við merkjum aukningu í þessu, þetta hefur verið mun meira en síðustu ár," segir Kári en í nóvember síðastliðnum var íslenskur karlmaður stöðvaður á Keflavíkurflugvelli með 35 þúsund steratöflur og 500 ambúlur. Sá var að koma frá Þýskalandi. Kári segist ekki hafa tekið saman hversu mikla aukningu sé um að ræða, en það sé ljóst að hún er allnokkur sé tekið mið af meðaltali slíkra smygla á síðustu árum. „Þetta virðist koma í bylgjum," segir Kári. „Þetta er óvanalega mikið," bætir hann við en segist ekki geta gefið upp nánari upplýsingar um önnur mál varðandi innflutning á sterum, þar sem þau eru öll enn til rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum. Kári segir að það þurfi hinsvegar að laga eitt í lagaumhverfinu, sem er að innflutningur á sterum varðar ekki við fíkniefnalöggjöfina, heldur lyfjalöggjöfina. Því séu refsingar mun vægari. „Þessu er öfugt farið annarstaðar á Norðurlöndum," segir Kári.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira