Lífið

Margrét Gnarr: "Í versta tilfelli rotar hún þig"

Ellý Ármanns skrifar

Margrét Edda Gnarr fitnessdrottning með meiru er nýkomin heim frá Finnlandi þar sem hún keppti á Norðurlandamótinu í Taekwondo.  Margrét komst á sigurpall og vann silfurverðlaun eftir úrslitabardagann á móti keppanda sem varð í 5. sæti á Ólympíuleikunum 2012. 

Margrét Gnarr landaði silfrinu á Norðurlandamótinu í Taekwondo.

Til hamingju með frábæran árangur. Hvernig gekk? „Í fyrsta bardaga keppti ég á móti stelpu frá Finnlandi. Ég byrjaði fyrstu lotu á að ná mjög miklu forskoti og reyndi svo að spara orkuna út bardagann. Ég vann þann bardaga 5-12," svarar Margrét.

Í versta tilfelli rotar hún þig


„Í úrslitabardaga fór ég á móti stelpu sem var í 5. sæti á síðustu Ólympíuleikum, Suvi Mikkonen. Hún skráði sig á mótið með litlum fyrirvara en ég vissi ekki að hún yrði með mér í flokki fyrr en á degi fyrir mótið." 

„Það var frekar stressandi að keppa á móti svona reyndum keppanda en ég var líka spennt fyrir því, því þetta yrði bardagi sem ég myndi læra sem mest af. Markmiðið mitt var bara að gera mitt besta og ég hugsaði um þetta sem reynslu. Ég var auðvitað soldið smeyk samt því hún er þekkt fyrir að sparka mikið í haus og einn strákur úr landsliðinu sagði við mig fyrir bardagann: „Í versta tilfelli rotar hún þig".  

Stelpan er með þetta.

Hlakkar til að bæta sig meira

„Ég fékk mörg hrós fyrir það hvernig ég stóð mig á móti henni. Hún reyndi mjög mörg spörk í haus og hitti þrisvar sinnum. Ég hitti eitt skipti næstum því í hausinn á henni með hring króksparki. Ég hlakka til að fá fleiri svona bardaga og bæta mig meira," segir hún ánægð.

Íslendingum, sem voru 31 talsins, gekk mjög vel á mótinu en fimm úr landsliðinu fengu gull, níu silfur og níu brons. 

Sjáið sparkið hjá Margréti.
Komin á verðlaunapall - nema hvað!
embed kassi hér





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.