Skyndihjálpar-app frá Rauða krossinum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 15. desember 2013 21:43 Slysin gera ekki boð á undan sér. Þegar óhöpp verða er gott að vera vel að sér í skyndihjálp. Mynd úr safni. „
Þetta er skyndihjálpar-app sem við vonumst til þess að sem flestir Íslendingar hafi í símanum sínum. Það getur hjálpað fólki þegar það lendir í aðstæðum þar sem það þarf að beita skyndihjálp,“ segir Þórir Guðmundsson, yfirmaður hjálparstarfssviðs Rauða krossins, um nýtt app sem Rauði krossinn gaf út í síðustu viku. Appið má nú nálgast í App store og á Play Store. Þar segir að appið veiti aðgang að einföldum leiðbeiningum um allar helstur aðgerðir skyndihjálpar sem nýst geti í daglegu lífi. Með myndböndum, gagnvirkum prófum og einföldum skilaboðum hafi aldrei verið eins auðvelt að læra skyndihjálp. Appið kostar ekkert. Þórir segir að oftast þegar fólk þurfi að beita skyndihjálp sé það vegna þess að einhver því nákominn þurfi á aðstoð að halda. Þá geti verið mjög gott að hafa appið í símanum til að leiða fólk áfram. Á appinu er einnig hægt að taka próf þannig að hver og einn getur séð hversu vel hann er að sér í skyndihjálp. Þannig er hægt að sjá hvað megi bæta og slíkt getur komið sér vel ef slys verða. Einnig er hægt að taka prófið hér. Á næsta ári á Rauði krossinn 90 ára afmæli og af því tilefni ætlar Rauði krossinn á Íslandi að vera með sérstakt átak í skyndihjálp. Útgáfa skyndihjálpar-appsins er hluti af því verkefni. Þórir segir að Rauði krossinn kenni árlega um 7 til 10 þúsuns manns skyndihjálp og minnir á að mikilvægt sé að fólk fari á námskeið á þriggja ára fresti. „Það er von okkar að appið verði til þess að fólk átti sig betur á því hvað það kann og hvað ekki og einnig að það læri af appinu,“ segir Þórir. „Þannig að miklu fleiri Íslendingar geti á ögurstundu aðstoðað þegar slys verður eða komið í veg fyrir meiri skaða.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Sjá meira