Hamburg saumar að Degi og félögum | Góður sigur Löwen Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. apríl 2012 19:42 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Löwen. Nordic Photos / Getty Images
Þrír leikir fóru fram nú síðdegis í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Hamburg vann öruggan útisigur á Grosswallstadt og er nú einu stigi á eftir Füchse Berlin sem féll niður í þriðja sæti deildarinnar í dag. Berlínarliðið tapaði þá fyrir Flensburg sem komst upp í annað sætið. Þrjú efstu liðin eru örugg með sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og því útlit fyrir spennandi lokasprett á tímabilinu. Sverre Andreas Jakobsson skoraði eitt mark fyrir Grosswallstadt í dag en sigur Hamburg var öruggur. Hinn íslenskættaði Hans Lindberg fór á kostum og skoraði fjórtán mörk fyrir Hamburg. Rhein Neckar Löwen er í fimmta sæti deildarinnar með 39 stig, fjórum á eftir Hamburg. Liðið vann góðan heimasigur á Lübbecke, 30-24. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark en þjálfari Löwen er Guðmundur Guðmundsson. Þá skoraði Rúnar Kárason fjögur mörk fyrir Bergischer HC sem tapaði naumlega fyrir Eintracht Hildesheim, 29-28, á heimavelli. Hildesheim var að vinna aðeins sinn annan leik í vetur en liðið er langneðst í deildinni. Bergischer er í fallsæti með fimmtán stig, fjórum stigum á eftir Hannover-Burgdorf sem er í næsta sæti fyrir ofan. Tap Rúnars og félaga í dag gæti því reynst afar dýrkeypt þegar uppi verður staðið.
Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira