Guðjón Valur um fyrirliðabandið: Held áfram að vera sami leikmaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2012 16:00 Guðjón Valur Sigurðsson. Mynd/AFP
Guðjón Valur Sigurðsson hefur tekið við fyrirliðabandinu af Ólafi Stefánssyni og Evrópumótið í Serbíu verður fyrsta stórmótið þar sem Guðjón Valur er fyrirliði liðsins frá fyrsta leik. Íslenska liðið leikur sinn fyrsta leik á EM á móti Króatíu á morgun. „Ég er búinn að vera fyrirliði liða í þýsku úrvalsdeildinni og ef það er eitthvað sem er í gangi og ég get hjálpað til þá geri ég það. Ég geri það hvort sem ég er með fyrirliðabandið á hendinni eða ekki," sagði Guðjón Valur um nýtt hlutverk. „Ég fer ekki út með einhverjar svakalega byrðar á öxlunum að ég verði núna að gera þetta eða segja hitt. Ég held áfram að vera sá leikmaður og sú manneskja sem ég er. Að sjálfsögðu reynir maður að horfa meira á það hvort að maður geti hjálpað einstaka leikmönnum í vissum kringumstæðum í leikjum eða utan vallar. Þetta er ekki eitthvað sem þyngir mig um einhver kíló," sagði Guðjón Valur. „Ég er hornamaður og veit um hlutverk mitt í þessu liði. Þó að ég sé orðinn fyrirliði þá breytist ekki hlutverk mitt innan vallar. Ég er ekki að öskra meira eða öskra hærra, hlaupa hraðar eða stökkva hærra. Ég held áfram að vera sá leikmaður sem ég er enda kannski fullseint að fara breyta einhverju núna á gamallsaldri," sagði Guðjón Valur en hann hefur áður verið fyrirliði íslenska liðsins á fjórum leikjum á EM (2006 og 2008) sem og á einum leik á HM í Svíþjóð í fyrra.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Sjá meira