Danskur landsliðsmaður í einangrun á hótelinu og missir af fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2012 17:00 Lasse Svan Hansen. Mynd/AFP
Danski landsliðsmaðurinn Lasse Svan Hansen verður ekki með Dönum á móti Slóvakíu í fyrsta leik þjóðanna á EM í Serbíu í dag. Hansen glímir við magakveisu og hefur verið settur í einangrun til þess að koma í veg fyrir að hann smiti hina í liðinu. „Sven hefur verið settur í einangrun á hótelinu Hann hefur ekkert getað borðað í dag og hefur því ekki kraft til þess að spila leikinn á móti Slóvakíu," segir í fréttatilkynningu á heimasíðu danska handboltasambandsins. Lasse Svan Hansen er 28 ára örvhentur hornamaður sem spilar með þýska liðinu SG Flensburg-Handewitt. Hann hefur skorað 148 mörk í 73 landsleikjum. Hansen lék á sínum tíma með Snorra Steini Guðjónssyni og Ásgeiri Erni Hallgrímssyni hjá danska félaginu GOG Svendborg. Þessar fréttir þýða að mun meira reyna á hinn íslensk ættaða Hans Lindberg í þessum leik í kvöld sem hefst klukkan 19.15 að íslenskum tíma. Örvhentu skytturnar Kasper Søndergaard og Mads Christiansen gætu reyndar líka leyst Hans af í horninu. Ulrik Wilbek, þjálfari danska landsliðsins, tilkynnti bara inn fimmtán leikmenn og því hefur hann bara fjórtán leikmenn í leiknum í kvöld.
Mest lesið Uppgjörið: Frakkland - Ísland 2-1 | Grátlegt tap í París eftir hetjulega baráttu Fótbolti Þurfti þrjú spor eftir árekstur við rútu landsliðsins Fótbolti Englendingar skoruðu fimm í Serbíu Fótbolti Blaðamenn fleiri en Íslendingar Fótbolti Sársvekktur Andri Lucas: „Ég eiginlega veit ekki hvað hann dæmir á“ Fótbolti Lærisveinar Heimis fara illa af stað Fótbolti Leiðin á HM: Menn ósammála og Gummi Ben brenndi sig Fótbolti Nuno rekinn frá Forest Enski boltinn Einkunnir Íslands: Andri Lucas bestur í grátlegu tapi í París Fótbolti Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Handbolti Fleiri fréttir Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi KA lagði nýliðana á Selfossi Stórleikur Söndru tryggði ÍBV sigur Hófu titilvörnina með sigri og Sara með stórleik á Ásvöllum „Verður ekki meira svekkjandi en þetta“ Ómar Ingi skyggði á Gidsel Uppgjörið: Stjarnan - Minaur Baia Mare 26-27 | Stjarnan féll úr leik á grátlegan hátt eftir vítakastkeppni Elín Klara markahæst í risasigri Nýliðarnir byrja á góðum sigri Afturelding marði Hauka í Hafnafirði Fram byrjar tímabilið á sterkum útisigri í Kaplakrika Íslendingarnir tryggði Gummersbach sigur Ómar Ingi með sex marka forskot á Gidsel „Gott að ná í tvö stig strax í byrjun“ Uppgjör: Stjarnan - Valur 27-32 | Ágúst Þór fékk óskabyrjun með Valsliðið Ómar með átta úr átta og Donni allt í öllu í sigri „Taugalaus“ Óðinn með þrettán mörk Viggó lék stóra rullu þegar lærisveinar Arnórs frusu Mætti sköllótt til baka aðeins fimm dögum eftir lyfjameðferð Aron hefur engan áhuga á að þjálfa Sjáðu Viktor Gísla fá hópknús eftir að hafa tryggt Barcelona titil Sigursteinn framlengir við FH HSÍ skiptir út merki sambandsins Valur meistari meistaranna Stjörnumenn gerðu vel úti í Rúmeníu Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Minaur Baia Mare 26-27 | Stjarnan féll úr leik á grátlegan hátt eftir vítakastkeppni