Innlent

Strand Fernanda í myndum

mynd/Landhelgisgæslan
Þyrla Landhelgisgæslunnar náði þessum myndum af strandstað flutningskipsins Fernanda í innsiglingunni í Sandgerði fyrr í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðarstjórn Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð er nú beðið eftir að dráttarbáturinn Magni komi frá Reykjavík en hann mun verða til aðstoðar og styðja við skipið þegar það reynir að losna af strandstaðnum á háflóði.

Þá er reiknað með að háflóð verði milli klukkan 17:00 og 18:00.

Stýrimaður frá Landhelgisgæslunni og lögreglan eru um borð í skipinu og hafa tekið skýrslu af skipstjóranum. Einnig er varðskipið Þór á staðnum og er til taks ef á þarf að halda.

Fernanda/J7AM7 er skráð í Dóminíska lýðveldinu. Skipið missti af beygju þegar það sigldi með lóð inn í höfnina snemma í morgun.

mynd/Landhelgisgæslan

Tengdar fréttir

Skipstjórinn mun reyna að losa skipið

Skipstjóri flutningaskipsins Fernanda/J7AM7 mun sjálfur reyna að ná skipinu af strandstað á háflóði síðar í dag. Áhöfn varðskipsins Þórs hefur nú rætt við áhöfn Fernanda og mun varðskipið vera áfram á staðnum og kemur til aðstoðar ef þörf krefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×