Innlent

Fernanda losnaði af strandstað

Fernanda á strandstað.
Fernanda á strandstað. mynd/Landhelgisgæslan
Flutningaskipið Fernanda sem strandaði í innsiglingunni í Sandgerði í morgun losnaði af sjálfsdáðum af strandstað fyrir skömmu.

Er skipið nú komið að bryggju í Sandgerði og mun rannsóknarnefnd sjóslysa taka við gögnum frá Landhelgisgæslunni og lögreglu og taka við málinu.

Fernanda, sem er skráð í Dóminíska lýðveldinu, missti af beygju þegar það sigldi með lóðs inn í höfnina.

Skipið er 75 metra langt og 7.576 brúttótonn. Ellefu skipverjar eru um borð og heilast þeim vel.


Tengdar fréttir

Skipstjórinn mun reyna að losa skipið

Skipstjóri flutningaskipsins Fernanda/J7AM7 mun sjálfur reyna að ná skipinu af strandstað á háflóði síðar í dag. Áhöfn varðskipsins Þórs hefur nú rætt við áhöfn Fernanda og mun varðskipið vera áfram á staðnum og kemur til aðstoðar ef þörf krefur.

Strand Fernanda í myndum

Þyrla Landhelgisgæslunnar náði þessum myndum af strandstað flutningskipsins Fernanda í innsiglingunni í Sandgerði fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×