Viðskipti innlent

Töluvert dró úr veltu á gjaldeyrismarkaðinum

Töluvert dró úr veltunni á millibankamarkaði með gjaldeyri í desember síðast liðnum. Alls nam veltan 10,8 milljörðum kr. sem er 28,7% minni velta en í fyrra mánuði.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að þar af námu gjaldeyriskaup Seðlabankans 957 milljónum kr. eða 8,8% af heildarveltu mánaðarins.

Meðalgengi evrunnar gagnvart krónunni var 0,3% hærra í desember en í fyrra mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×