Enn margir óvissuþættir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. janúar 2012 07:00 Guðmundur fer yfir málin með leikmönnum íslenska landsliðsins fyrir æfingu í íþróttahúsi Fram í Safamýrinni gær. Mynd/Stefán
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi í gær átján leikmenn sem hann mun taka með sér á æfingamót í Danmörku sem fer fram nú um helgina. Leikið verður við heimamenn, Pólverja og Slóvena, en síðastnefnda þjóðin er einnig með Íslandi í riðli á Evrópumeistaramótinu sem hefst í Serbíu þann 15. desember næstkomandi. Guðmundur fær að tilkynna sextán leikmenn í EM-hóp Íslands en nokkrir óvissuþættir eru enn um leikmannahópinn. Snorri Steinn Guðjónsson hefur til að mynda ekkert æft með liðinu í vikunni – hann er enn í Danmörku þar sem kona hans á von á sér. Guðmundur vill því hafa varann á. „Af þeim sökum hefur Arnór [Atlason] verið mikið á miðjunni og Aron [Pálmarsson] yfirleitt í vinstri skyttunni á æfingum okkar," segir Guðmundur en Ólafur Guðmundsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson geta líka leyst þessar stöður. „Vonandi getur Snorri komið eins fljótt og mögulegt er til okkar en þangað til þurfa hinir að vera með sín hlutverk á hreinu." Að mörgu að hugaBjörgvin Páll Gústavsson og Kári Kristjánsson.Mynd/StefánHann segir að flestir leikmenn séu heilir en þeir Ingimundur Ingimundarson og Alexander Petersson gátu þó lítið sem ekkert æft í gær vegna meiðsla. Ingimundur meiddist á nára á fyrstu æfingu landsliðsins í vikunni og Alexander er tæpur vegna meiðsla í öxl. Svo má geta þess að Arnór Atlason lætur sig hafa það að spila þrátt fyrir brjósklos í baki en ljóst að það er að mörgu að huga hjá Guðmundi. Aron Rafn Eðvarðsson fer út til Danmerkur sem þriðji markvörður en Guðmundur hefur mikla trú á honum. „Hann fer með svo hann kynnist því betur hvernig það er að vera með landsliðinu. Að mínu mati er hann maður framtíðarinnar - ég er reyndar ekki í vafa um það. Þess vegna viljum gefa honum tækifæri," segir Guðmundur. „Vegna þess og stöðu Snorra Steins förum við með átján menn til Danmerkur en ekki sextán." Hann útilokar ekki að taka sautján leikmenn með sér til Serbíu og halda einu sæti lausu í sextán manna lokahópnum þegar keppnin hefst. „Við verðum bara að meta það út frá meiðslum leikmanna og hvort við viljum eiga fleiri valkosti úti í Serbíu. Álagið er mikið á svona mótum og því gæti það verið góður kostur." Ánægður með alla leikmenninaRúnar Kárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson.Mynd/StefánFannar Friðgeirsson og Arnór Þór Gunnarsson eru í æfingahópnum en fara ekki með til Danmerkur. Þeir munu samt æfa áfram með liðinu þegar það kemur heim á mánudaginn. „Ég er mjög ánægður með báða þessa leikmenn og reyndar við alla þá leikmenn sem voru valdir í hópinn. Þeir hafa staðið sig vel á æfingum," segir Guðmundur. Hann vill að liðið nái vel saman í Danmörku og skili því í leikina sem hafi verið tekið fyrir á æfingum. „Þetta er allt að koma, ég er viss um það. Við viljum líka upplifa að við getum spilað vel og staðið okkur vel svo að menn fái sjálfstraustið í lag. Aðalmálið verður þó að við stöndum okkur vel þegar mótið hefst og það verður ekki heimsendir þótt leikir tapist í æfingamóti. Við töpuðum til að mynda öllum okkar leikjum fyrir Ólympíuleikana í Peking – það er því allur gangur á þessu," sagði þjálfarinn og brosti.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Sjá meira