Tryggingastofnun fór ekki að lögum 27. júlí 2012 05:30 Umboðsmaður átelur Úrskurðarnefnd almannatrygginga fyrir svör við bréfi embættisins. Fréttablaðið/pjetur
Tryggingastofnun og Úrskurðarnefnd almannatrygginga fóru ekki að lögum þegar umsókn foreldra fatlaðs drengs um styrk til bílakaupa var hafnað árið 2010. Þetta er niðurstaða Umboðsmanns Alþingis, sem birti álit í þá veru í gær. Drengurinn er bundinn við hjólastól. Foreldrar hans fengu styrk til bílakaupa árið 2007 og sóttu svo aftur um styrk árið 2010. Samkvæmt lögum má aðeins fá styrk á fimm ára fresti, nema ef bíllinn eyðileggst. Tryggingastofnun og Úrskurðarnefndin túlkuðu undanþáguákvæðið þannig að það ætti bara við ef bíll eyðilegðist skyndilega, til dæmis í umferðarslysi, en í tilfelli fólksins sem sótti um styrk bilaði hann og það svaraði ekki kostnaði að gera við hann. Umboðsmaður telur túlkun Tryggingastofnunar og Úrskurðarnefndarinnar of þrönga og ganga gegn því markmiði styrksins að gera fötluðum kleift að stunda vinnu, skóla og endurhæfingu. Hann æskir þess að mál fólksins verði tekið upp að nýju. Umboðsmaður átelur jafnframt Úrskurðarnefndina fyrir að svara bréfi sínu með því að ítreka bara fyrri úrskurð og segjast ekki sjá ástæðu til að svara spurningunum sem í því voru nema þess væri sérstaklega óskað.- sh
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Sjá meira