Aron: Mjög mikill léttir Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 27. júlí 2012 19:15
Aron Pálmarsson er kominn aftur á fullt skrið með íslenska landsliðinu - ekki seinna vænna enda aðeins tveir daga í fyrsta leik þess á Ólympíuleikunum í Lundúnum. „Ég var að klára mína fyrstu æfingu þar sem ég gat verið með af fullum krafti og ég fann ekki fyrir meiðslunum. Það er mjög jákvætt," sagði Aron en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Það vantar kannski aðeins upp á snerpu og annað slíkt þar sem ég hef ekki getað æft lengi en ég verð þá bara duglegur að mæta í ræktina fyrir æfingarnar okkar. Þetta verður vonandi gott í öðrum eða þriðja leik." Aron var kallaður út til Kiel í læknisskoðun á sunnudaginn en hann kom aftur til Íslands á mánudaginn. Landsliðið hélt svo til London á miðvikudag. „Þetta var kannski fullmikið á stuttum tíma en þetta var eitthvað sem ég þurfti að gera. Ég lét mig hafa það og ég sé ekki eftir því núna." „Ég var ekki ósáttur við þessa ákvörðun enda fékk ég góða meðferð hjá lækninum í Þýskalandi. En ég er þó búinn að vera svolítið þungur síðan við komum frá Frakklandi út af allri þessari dramatík í kringum mig. Það er aldrei gaman að lifa í óvissu, sérstaklega fyrir Ólympíuleika." „Ég er því í skýjunum með að hafa getað æft með núna. Það er mikill léttir."
Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Sjá meira