Fjögur þúsund á Landsmóti skáta 27. júlí 2012 18:19
Gestum á mótssvæði Landsmóts skáta fer fjölgandi og straumur ferðafólks hefur legið á svæðið síðan síðdegis í gær, enda veðurspá helgarinnar góð. Fjöldi gesta fjölskyldubúða mótsins eru nú þegar kominn yfir eitt þúsund. Í tilkynningu frá Landsmótinu segir að á mótssvæðinu öllu séu nú á fjórða þúsund gestir og mun fjölga áfram fram eftir kvöldi. „Gera má ráð fyrir miklu fjöri á Úlfljótsvatni í kvöld þar sem Ingó og veðurguðirnir munu stíga á svið og standa fyrir dansleik frameftir kvöldi. Í dag hafa úrslitaviðureignir í keppninni um skátaflokk Íslands farið fram auk þess sem skátarnir á mótinu hafa undirbúið sig fyrir gestagang morgundagsins. En á morgun verða tjaldbúðir skátanna og mótssvæðið allt opið í tilefni 100 ára afmælis íslensks skátastarfs og eru gestir boðnir hjartanlega velkomnir. Skátarnir standa fyrir afmælisdagskrá allan daginn en mótinu lýkur svo annað kvöld með hátíðarkvöldvöku og mótsslitum sem hefjast kl. 20. Landsmót skáta hefur staðið síðan síðastliðna helgi og hafa um tvö þúsund skátar frá 18 þjóðlöndum skemmt sér við leik og störf í blíðviðrinu á Úlfljótsvatni. Íslenskir skátar hafa undanfarna áratugi haldið landsmót á um þriggja ára fresti og er mótið í ár það tuttugasta og þriðja. Fjöldi erlendra þátttakenda hefur fari vaxandi á undanförnum árum en nú sækja mótið um 600 erlendir skátar," segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Sjá meira