Teiknuðu kort af San Francisco 27. júlí 2012 22:01 Kortið
Fyrirtækið Borgarmynd hefur unnið að gerð handteiknaðs korts af San Francisco, en verkið er unnið fyrir hönnunarstofuna The Open Company, þar í borg. Kortið er allt handteiknað og vatnslitað og unnið eftir tölvugerðum þrívíddarmódelum, loftmyndum og ljósmyndum víðsvegar að úr borginni. Kortið hampar meðal annars 40 bestu veitingastöðum borgarinnar að mati starfsmanna hönnunarstofunnar. Kortið er prentað á alveg sérstakan vatns- og rifþolinn pappír, sem brotinn er saman í sérhæfðri verksmiðju í Japan. Bara á þessum eina stað í Japan var hægt að brjóta kortið rétt, en um er að ræða svokallað Miura brot, sem þróað var af samnefndum geimvísindaverkfræðingi fyrir sólarsellur gervihnatta. Þetta brot er alveg stórmerkilegt og kortið eiginlega sjálf-sambrjótandi. „Borgarmynd hefur einnig opnað kortavefinn icelandillustrated.com þar sem sjá má handteiknað þrívítt Íslandskort frá Borgarmynd. Íslandskortinu er einnig dreift í 75.000 fríum eintökum ár hvert. Kortið var unnið af Pétri Stefánssyni og Snorra Þór Tryggvasyni hjá Borgarmynd, með aðstoð Ómars Ragnarssonar fréttamanns með meiru. Kortavefurinn skartar einnig tvöhundruð ljósmyndum víðsvegar að á Íslandi. Borgarmynd gerir einnig og gefur út handteiknað Reykjavíkurkort sem nefnist Reykjavík Center Map, en það hefur verið gefið út í 50.000 fríum eintökum undafarin 3 ár. Kortin rjúka út, enda falleg, skemmtileg að skoða og gott hjálpartæki fyrir ferðalanga. Þessi tegund korta gerir mörgum auðveldara að rata um og gefur kost á mun sterkari sjónrænum tengingum við umhverfið ásamt því að vera skemmtilegir minjagripir. Borgarmynd fjármagnar útgáfuna með sölu upplýsingaramma á kortinu þar sem verslanir, hótel og veitingastaðir geta náð athygli ferðamannsins," segir í tilkynningu.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira