Nánast engin upphitun í kvöld | Vanvirðing við leikmennina Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 16. janúar 2012 21:52 Guðmundur er ekki ánægður með fyrirkomulag mótsinsí Serbíu. Hann spjallar hér við annan dómara leiks Íslands og Króatíu í kvöld. mynd/vilhelm
Þjálfarar Íslands og Króatíu lýstu báðir yfir vanþóknun sinni á fyrirkomulagi mótsins hér í Serbíu en liðin fengu varla tíu mínútur til þess að hita upp fyrir leikinn. "Ég er eiginlega sorgmæddur. Það er ótrúlegt að mönnum detti þetta í hug. Mér skilst að EHF hafi verið bent á þetta síðasta haust og þá var ekki hlustað. Við erum heppnir að hafa náð fimm mínútum í upphitun því leikurinn á undan hefði einnig getað dregist á langinn," sagði Guðmundur en Slavko Goluza, þjálfari Króatíu, tók í sama streng á blaðamannafundi eftir leikinn. "Sú staða hefði getað komið upp að við hefðum fengið tvær mínútur til að hita upp. Það hefði líklega verið í fyrsta skipti í sögu handboltans sem lið fá tvær mínútur til þess að hita upp," sagði Guðmundur en enginn upphitunarhöll er í Millenium-höllinni í Vrsac. "Það er allt í lagi að skokka kannski á einhverjum gangi í tíu mínútur. Síðan þurfa leikmenn að komast út á völlinn og hita upp axlirnar. Það þarf líka að hita markverðina og annað. Það er ekki hægt á þessum tíma," sagði Guðmundur og bætti við að það væri ekki alvarlegast. "Þetta kallar á meiðslahættu og í raun vanvirðing við þessa heimsklassaleikmenn að bjóða upp á þetta. Við lendum aftur í þessu á miðvikudaginn. Ég veit ekki hvernig við tæklum þetta þá." Fyrir utan hversu lítill tími er á milli leikja þá fór í taugarnar á þjálfurunum athöfnin sem er eftir leiki þar sem bestu leikmennirnir fá verðlaun. "Það tók af okkur fimm mínútur í viðbót. Hvað á maður að segja? Ég er bara orðlaus yfir þessu."
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira