Fádæma úrkomusöm haustbyrjun 3. október 2012 02:00 Rafmagnslínur á Norðurlandi slitnuðu í september vegna ísingar og rafmagn fór af í kjölfarið á stóru svæði. Fréttablaðið/Egill Aðalsteinsson
Síðasti mánuður var úrkomusamasti september víða á Norðurlandi síðan mælingar hófust. Fádæma úrkomusamt var víða um landið norðanvert og úrkoma var vel ofan meðallags á flestum stöðvum, er fram kemur í samantekt Veðurstofu Íslands á tíðarfari septembermánaðar. Á Akureyri var meira en þreföld meðalúrkoma, en meira hefur einungis mælst einu sinni í september og var það árið 1946. Óvenjumikið hríðarveður og fannfergi gerði á Norðurlandi dagana 9. til 11. september. Raflínur slitnuðu, þúsundir fjár týndust í snjónum og rafmagn fór af í fleiri sólarhringa á sumum svæðum. Enginn bóndi í Þingeyjasýslum sem Fréttablaðið hefur rætt við man eftir slíku tíðarfari áður. Mikil ísing fylgdi veðrinu sem gerði aðstæður óvenjuslæmar. Úrkoma í Reykjavík var rúmlega helmingi meiri en í meðalári, en hún mældist síðast meiri árið 2008. Fyrstu níu mánuðir ársins voru einnig óvenjuhlýir. Í Reykjavík hefur meðalhiti tímabilsins aðeins sex sinnum verið hærri en í ár. Þá hefur einungis tvisvar sinnum orðið hlýrra í Stykkishólmi frá 1845 og var það 2003 og 2010. Á Akureyri hefur fimm sinnum orðið hlýrra, síðast 2004.- sv
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Sjá meira