Þór Saari þarf að greiða Ragnari Árna 300 þúsund Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. október 2012 16:04 Ragnar Árnason og Þór Saari við þingfestingu málsins.
Þór Saari hefur verið dæmdur til að greiða Ragnari Árnasyni, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, 300 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem birtust í frétt DV þann 7. - 8. september í fyrra. Þá voru ummælin „Ragnar Árnason hefur verið á launum hjá LÍU í áratugi" sem birtust í umræddri frétt dæmd dauð og ómerk. Þór þarf að auki að greiða Ragnari 800 þúsund krónur í málskostnað. Héraðsdómur Reykjaness kemst að þeirri niðurstöðu fullyrðing Þórs sé röng. Þá sé það enn fremur mat dómsins að röng fullyrðing geti ekki með nokkru móti verið heimil tjáning; átt erindi til almennings eða verið liður í gagnrýni og ádeilu á starf Háskóla Íslands eins og stefndi heldur fram. Engu breyti hvort Ragnar geti talist opinber persóna eða ekki. „Þá er því enn fremur hafnað að upplýsingar frá stefnda, eins og þær eru fram settar í frétt DV frá 7.-8. september 2011 endurspegli umræðu sem sé fræðandi og upplýsandi og auki skilning almennings á fjölmörgum þáttum sjávarútvegs og hvað þá að ummæli stefnda geti verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um málið," segir í dómnum. Þá segir dómurinn að ummæli Þórs Saari í DV séu tilhæfulaus, óviðurkvæmileg og ærumeiðandi í því samhengi sem þau voru birt. Ummælin séu móðgandi og meiðandi fyrir Ragnar og feli í sér aðdróttun.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira