Innlent

Týndir þú myndavél í Reykjadal?

„Þetta eru líklega áhugamenn um svifdreka," segir Þór Ólafur Ólafsson, staðarhaldari á tjaldsvæðinu Reykjamörk í Hveragerði en lögreglumaður á frívakt kom verðmætri myndavél í hendur Þórs en vélina fann hann upp í Reykjadal í gærkvöldi. Þór Ólafur ákvað því að hafa samband við fréttastofu í von um að finna eiganda myndavélarinnar sem er af gerðinni Canon G10.

Þór Ólafur segir að í vélinni megi finna myndir frá Úlfarsfelli þar sem eigandinn og félagi hans hafa verið að leika sér á svifdrekum. Þá er einnig að finna myndir teknar upp á Sandskeiði.

Ef einhver kannast við lýsinguna þá er hægt að hafa samband við Þór í síma 660 9280. Við þetta má bæta að viðkomandi verður beðinn um að færa einhverskonar sönnur á að hann sé sannarlega eigandi vélarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×