Serbar unnu grannaslaginn og leika til úrslita Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. janúar 2012 15:36 Nordic Photos / AFP
Öskubuskuævintýri Serbíu heldur áfram á Evrópumeistaramótinu þar í landi en liðið tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik mótsins með sigri á Króötum í undanúrslitum, 26-22. Króatar höfðu eins marks forystu í hálfleik, 14-13, en náðu sér engan veginn á strik í þeim síðari. Markvarslan var nánast engin og sóknarleikurinn í molum. Serbar gengu á lagið og sigu fram úr, hægt og rólega. Darko Stanic, markvörður Serba, fór í gang og varði nokkur afar mikilvæg skot. Skytturnar Momir Ilic og Marko Vujin fóru mikinn í sókninni og skoruðu samanlagt meira en helming marka sinna manna. Króatar voru afar ólíkir sjálfum sér. Hugmyndasnauðir og úrræðalitlir í sókninni og Mirko Alilovic, sem hafði verið frábær í markinu allt mótið, var langt frá sínu besta. Serbar gerðu þó sitt vel, spiluðu varnarleikinn af mikilli festu í seinni hálfleik og spiluðu af krafti í sókn. Lið heimamanna var vel stutt af 20 þúsund áhorfendum í höllinni í Belgrad í kvöld en gríðarmikil öryggisgæsla var í kringum leikinn. Það var þó ekki annað að sjá en að leikurinn hafi farið vel fram enda var hann drengilega leikinn. Úrsltaleikur Serbíu og Danmerkur fer fram á sunnudaginn. Leikurinn skiptir máli fyrir Ísland því ef Danir vinna fær Ísland auðveldari riðil í undankeppni Ólympíuleikanna í apríl. Liðið yrði þá með Króötum, Japönum og Síle í riðli. Ef Serbar verða hins vegar meistarar mun Ísland keppa í riðli með Spáni, Slóveníu og Brasilíu. Tvö lið komast áfram úr hverjum riðli á Ólympíuleikana.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira