Töpuðu 1,5 milljónum á hvert mannsbarn 3. febrúar 2012 18:43
Lífeyrissjóðirnir töpuðu 480 milljörðum króna á bankahruninu. Rúmlega helmingur er vegna fjárfestinga í tveimur félagasamstæðum og tengdum aðilum, en skýrsla rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna var kynnt í dag. Skýrsla rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna var kynnt á Grand hóteli kl. tvö í dag. Nefndina skipuðu þeir Hrafn Bragason, fyrrverandi hæstaréttardómari, Héðinn Eyjólfsson, viðskiptafræðingur og Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor í heimspeki. Fram kom á glærukynningu að heildartap lífeyrissjóðanna í hruninu næmi tæplega 480 milljörðum króna. Þar af er rúmlega helmingur vegna fjárfestinga og hlutabréfa í Baugs Group og Exista. Heildartapið nemur um einni og hálfri milljón króna á hvert mannsbarn í landinu miðað við mannfjölda 1. janúar 2011. Lífeyrissjóðirnir töpuðu 77 milljörðum á fjárfestingum og hlutabréfum í Baugi Group og tengdum aðilum, en inni í þeirri fjárhæð eru 47 milljarðar vegna Glitnis. Þá töpuðu þeir 170 milljörðum á Exista samstæðunni og tengdum aðilum. Samtals nemur tap vegna þessara tveggja samstæðna 248 milljörðum króna. Hrafn segir að lífeyrissjóðirnir hafi átt lögum samkvæmt að fjárfesta í skráðum félögum. „Auk þess er eignarhaldið alltaf að breytast og færast á færra hendur þannig að þetta endar svona," segir Hrafn. Í skýrslunni er hörð gagnrýni á einstaka lífeyrissjóði. Þar segir m.a í 4. bindi um fjárfestingar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í gjaldeyristryggingum, sem eru í raun afleiðuviðskipti að það hafi ekki samræmst langtímasjónarmiðum í rekstri sjóðsins að taka jafn mikla áhættu og raun bar vitni við kaup á þessum tryggingum. Nefndin fjallaði líka um siðareglur lífeyrissjóðanna, vegna gjafa- og boðsferða, en sárafáir lífeyrisssjóðir höfðu sett sér slíkar reglur fyrir hrunið. Nefndin safnaði hins vegar ekki gögnum um boðsferðirnar. „Áður en siðareglurnar eru settar þá hefur ýmislegt gengið á og gerst sem við vitum ekki um og sem hugsanlega hefur verið frá þeirra sjónarmiði núna ljóður á þeirra ráði," segir Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor í heimspeki og nefndarmaður. Smelltu á hlekkinn „Horfa á myndskeið með frétt" til að sjá blaðamannafundinn í heild.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira