Hverju er nauðsynlegt að fórna? Inga Sigrún Atladóttir skrifar 19. september 2012 06:00 Nú er fagnað á Suðurnesjum og færðar fréttir af því að álver í Helguvík verði brátt að veruleika. Í gleðinni virðast menn hafa misst sjónar á framtíðarhagsmunum og vera tilbúnir að kveðja Reykjanesskagann eins og fólk þekkir hann í dag. Álverið mun skapa fjölda starfa, um það þarf ekki að deila. Það þarf atvinnu á Suðurnesjum, það þurfum við heldur ekki að deila um. En…atvinnuuppbygging sem fylgir álveri í Helguvík mun kosta 8-16 jarðhitavirkjanir á skaganum sem tengdar verða saman með tilheyrandi mannvirkjum. Jarðhitavirkjunum fylgja brennisteinsmengun, borstæði, hitaveiturör, vegir og lón með affallsvatni. Uppbyggingin mun einnig þurfa tvöfalda röð af 30 metra háum stálmöstrum eftir endilöngum Reykjanesskaganum ásamt tengivirkjum. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki alltaf hægt að fá ýtrustu kröfum sínum fullnægt og það hef ég aldrei látið mig dreyma um. En er þetta nauðsynlegur fórnarkostnaður? Geta virkjunarsinnar ekki sýnt framandi sjónarmiðum smá virðingu og hugsað sér að landið geti verið einhvers virði þó það sé ekki fullt af rörum og staurum? Ég hef fyrst og fremst komið að þessu máli með því að reyna að fá Landsnet til að skoða hugmyndir um sæstreng eða jarðstreng út í Helguvík. Ég hef líka rætt um að fá raflínur færðar til svo svæði innan Sveitarfélagsins Voga sem er fyrir ofan Reykjanesbraut verði ekki óhæft til nýtingar. Kröfum um allt slíkt hefur verið mætt með fyrirlitningu á skoðunum sem bera minnsta einkenni náttúruverndar og virðingarleysi fyrir annars konar nýtingaráformum en þeim sem fela í sér línur og línuvegi. Ég á erfitt með að sætta mig við að Suðurnesjamenn vilji búa í umhverfi þar sem fyrirætlanir eru um stóraukna brennisteinsmengun, aukna tíðni jarðskjálfta og stórar og öflugar raflínur með tilheyrandi segulsviði. Ég á erfitt með að trúa því að Íslendingar vilji í raun og veru sjá eitt samfellt orkuvinnslusvæði eftir öllum Reykjanesskaganum. Þetta er ekki bara einkamál náttúruverndarsinna, sveitarstjórnamanna á Suðurnesjum, erlendra ferðamanna eða landeigenda. Þetta er spurning um heilsufar og lífsgæði og spurning um hvort við erum öll tilbúin að kveðja Reykjanesskagann eins og við þekkjum hann í dag. Og þessi grein er ekki bara létt hugvekja – hún er ákall um hjálp. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Halldór 30.5.2026 Halldór Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Sjá meira
Nú er fagnað á Suðurnesjum og færðar fréttir af því að álver í Helguvík verði brátt að veruleika. Í gleðinni virðast menn hafa misst sjónar á framtíðarhagsmunum og vera tilbúnir að kveðja Reykjanesskagann eins og fólk þekkir hann í dag. Álverið mun skapa fjölda starfa, um það þarf ekki að deila. Það þarf atvinnu á Suðurnesjum, það þurfum við heldur ekki að deila um. En…atvinnuuppbygging sem fylgir álveri í Helguvík mun kosta 8-16 jarðhitavirkjanir á skaganum sem tengdar verða saman með tilheyrandi mannvirkjum. Jarðhitavirkjunum fylgja brennisteinsmengun, borstæði, hitaveiturör, vegir og lón með affallsvatni. Uppbyggingin mun einnig þurfa tvöfalda röð af 30 metra háum stálmöstrum eftir endilöngum Reykjanesskaganum ásamt tengivirkjum. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki alltaf hægt að fá ýtrustu kröfum sínum fullnægt og það hef ég aldrei látið mig dreyma um. En er þetta nauðsynlegur fórnarkostnaður? Geta virkjunarsinnar ekki sýnt framandi sjónarmiðum smá virðingu og hugsað sér að landið geti verið einhvers virði þó það sé ekki fullt af rörum og staurum? Ég hef fyrst og fremst komið að þessu máli með því að reyna að fá Landsnet til að skoða hugmyndir um sæstreng eða jarðstreng út í Helguvík. Ég hef líka rætt um að fá raflínur færðar til svo svæði innan Sveitarfélagsins Voga sem er fyrir ofan Reykjanesbraut verði ekki óhæft til nýtingar. Kröfum um allt slíkt hefur verið mætt með fyrirlitningu á skoðunum sem bera minnsta einkenni náttúruverndar og virðingarleysi fyrir annars konar nýtingaráformum en þeim sem fela í sér línur og línuvegi. Ég á erfitt með að sætta mig við að Suðurnesjamenn vilji búa í umhverfi þar sem fyrirætlanir eru um stóraukna brennisteinsmengun, aukna tíðni jarðskjálfta og stórar og öflugar raflínur með tilheyrandi segulsviði. Ég á erfitt með að trúa því að Íslendingar vilji í raun og veru sjá eitt samfellt orkuvinnslusvæði eftir öllum Reykjanesskaganum. Þetta er ekki bara einkamál náttúruverndarsinna, sveitarstjórnamanna á Suðurnesjum, erlendra ferðamanna eða landeigenda. Þetta er spurning um heilsufar og lífsgæði og spurning um hvort við erum öll tilbúin að kveðja Reykjanesskagann eins og við þekkjum hann í dag. Og þessi grein er ekki bara létt hugvekja – hún er ákall um hjálp.
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir Skoðun