Óvænt tap hjá Flensburg | Ólafur Bjarki með sjö Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. nóvember 2012 21:23 Arnór í leik með Flensburg. Nordic Photos / Getty Images
Leikið var í efstu tveimur deildunum í Þýskalandi í dag sem og í dönsku úrvalsdeildnni, þar sem Íslendingar voru í eldlínunni. Hannover-Burgdorf vann mjög góðan sigur á Flensburg á heimavelli og komst með honum upp í fimmta sæti deildarinnar. Flensburg situr eftir í því sjötta. Arnór Atlason skoraði ekki fyrir Flensburg að þessu sinni en mikil spenna var í leiknum og skoraði Mait Patrail sigurmark Hannover-Burgdorf þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka. Wetzlar, sem er í fjórða sæti, vann Göppingen á útivelli, 27-23. Kári Kristján Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Wetzlar og Fannar Friðgeirsson eitt. Vignir Svavarsson komst ekki á blað þegar að Minden tapaði fyrir Melsungen á útivelli, 26-21. Minden er í fjórtánda sæti deildarinnar. Í þýsku B-deildinni fór Ólafur Bjarki Ragnarsson mikinn er Emsdetten gerði jafntefli við Eisenach á útivelli, 27-27, í toppslag deildarinnar. Ólafur Bjarki skoraði sjö mörk fyrir Emsdetten og Ernir Arnarson tvö. Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Eisenach en Hannes Jón Jónsson er frá vegna veikinda og lék ekki með liðinu í dag. Emsdetten er á toppi deildarinnar með nítján stig en Eisenach í þriðja sætinu með fimmtán. Fjölmargir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Atli Ævar Ingólfsson skoraði tvö mörk fyrir SönderjyskE sem vann Skive, 25-22, en Anton Rúnarsson komst ekki á blað. Mors-Thy vann Skanderborg á útivelli, 30-26, og skoraði Einar Ingi Hrafnsson fjögur mörk fyrir fyrrnefnda liðið. Matthías Daðason skoraði eitt mark fyrir TMS Ringsted sem vann Nordsjælland, 36-25. Bjerringbro/Silkeborg hafði betur gegn Skjern í jöfnum leik, 29-28. Guðmundur Árni Ólafsson skoraði þó ekki fyrir fyrrnefnda liðið í leiknum. Bjerringbro/Silkeborg er í öðru sæti deildarinnar með sautján stig, SönderjyskE er í því sjötta með tíu stig og Mors-Thy í sjöunda með níu stig. TMS Ringsted er í tíunda sæti með sex stig.
Handbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Íslenski boltinn „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira