Bæjarfulltrúi ekki aðili að skuldamáli Mosfellsbæjar 7. ágúst 2012 01:00 Mosfellsbær samdi við verktaka um mikla uppbyggingu í Helgafellslandi árið 2006. Áformin gengu ekki eftir nema að litlum hluta og bærinn sat uppi með sjálfskuldarábyrgð vegna samningsins. Fréttablaðið/GVA
StjórnsýslaInnanríkisráðuneytið hefur vísað frá kæru Jóns Jósefs Bjarnasonar, fulltrúa minnihluta Íbúahreyfingarinnar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar, vegna afgreiðslu bæjarráðs á skuldamáli. Ráðuneytið segir bæjarfulltrúa ekki hafa kærurétt þar sem hann eigi ekki aðild að málinu. "Mér finnst þetta út í hött. Ráðuneytið á að verja lýðræðið og með þessu eru þeir að standa gegn því. Þeir eru að taka af bæjarfulltrúunum réttinn til að setja fram formlega skoðun á málinu," segir Jón. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað á fundi 21. júní að fela bæjarstjóra að semja um greiðslu til Landsbankans á um 250 milljónum króna. Um er að ræða sjálfskuldarábyrgð sem bærinn gekkst í fyrir verktaka vegna áforma um uppbyggingu í Helgafellslandi. Samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæinn var óheimilt að gangast í slíka sjálfskuldarábyrgð, eins og fjallað hefur verið um í Fréttablaðinu. Því hefur Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, mótmælt og vísað til þess að ábyrgðin falli undir daglegan rekstur sveitarfélagsins. Í kæru Jóns er vísað til sveitarstjórnarlaga, þar sem segir að sveitarstjórn ein geti tekið endanlegar ákvarðanir sem varði verulegar fjárhagslegar skuldbindingar. Því segir Jón augljóslega ólöglegt að afgreiða málið á fundi bæjarráðs. Jón segir að með því að fullafgreiða málið á fundi bæjarráðs sé þeim bæjarfulltrúum sem ekki eigi sæti þar haldið frá því að tjá sig um málið. Bæjarstjórnin er í sumarfríi um þessar mundir en kemur aftur saman í ágúst. Jón segir ekkert liggja á að afgreiða málið, vel hefði mátt bíða fram í ágúst með að taka lokaákvörðun um afgreiðslu þess. Innanríkisráðuneytið tekur ekki afstöðu til þess hvort kæruefnið sé réttmætt heldur vísar kærunni frá. Jón segir að niðurstöðu ráðuneytisins verði vísað til umboðsmanns Alþingis. "Ég vænti þess að hann snúi þessari ákvörðun, ég trúi ekki öðru." brjann@frettabladid.is
Mest lesið Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Innlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Maður féll í Vestari-Jökulsá Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Erlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Fleiri fréttir Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Sjá meira