Skipt út úr stjórn og fulltrúaráði Eirar 14. desember 2012 10:00 Þrír hafa þegar hætt í stjórn Eirar og munu aðrir hætta í dag. f réttablaðið/stefán
Flestum ef ekki öllum fulltrúum í fulltrúaráði Hjúkrunarheimilisins Eirar verður skipt út á fundi í dag. Í kjölfarið verður skipuð ný stjórn. Samstaða er meðal flestra um að óska eftir rannsókn á fjármálum hjúkrunarheimilisins á næstunni. Langflestum fulltrúum í fulltrúaráði Eirar verður skipt út á fundi í dag. Í kjölfarið verður nýtt fulltrúaráð skipað. Stjórn hjúkrunarheimilisins mun funda áður en fundur fulltrúaráðsins hefst. Það eru stofnaðilar Hjúkrunarheimilisins Eirar sem velja fulltrúa í fulltrúaráðið. Flesta fulltrúa á Reykjavíkurborg, eða sjö, en aðrir eiga þrjá fulltrúa í ráðinu. Það eru Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Samtök blindra og blindravina, Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði, Skjól, VR, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga, Brynja – hússjóður Öryrkjabandalagsins, Efling og SÍBS. Flestir stofnaðilanna ætla sér að skipta út fulltrúum sínum á fundinum í dag. Í kjölfarið er ætlunin að skipta út stjórn hjúkrunarheimilisins, en óvíst er hvort tekst að gera það á fundinum í dag eða hvort boða þarf aukafund til þess. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er samstaða um það meðal stofnaðilanna að óska eftir því að fjármál hjúkrunarheimilisins verði rannsökuð. Óvíst er þó hvernig sú rannsókn fer fram, en þrír stjórnarmenn hjá Eir fóru með gögn á fund sérstaks saksóknara fyrr í vikunni og óskuðu þess að hann athugaði hvort tilefni væri til að rannsaka starfsemina. Þetta voru þau Stefán Benediktsson, Þórunn Sveinbjörnsdóttir og Björn Agnar Magnússon, en ekki var haft samráð við aðra stjórnarmenn eða stjórnendur hjá Eir áður en þetta var gert. Að sama skapi hafa þessir þrír stjórnarmenn gert athugasemdir við boðun fulltrúaráðsfundar, sem fer fram í dag, en þeir telja að fundarboðið hafi verið ólöglegt. Í stað þess að boða skráða fulltrúa til fundar hafi skrifstofa Eirar sent frá sér bréf þar sem óskað var eftir því að stofnaðilar tilnefndu nýja fulltrúa í ráðið. Samkvæmt reglum er það stjórnin sem boðar til fulltrúaráðsfunda og þeir verða að vera haldnir minnst tvisvar á ári. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira