Valdi skólann fram yfir landsliðið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 24. nóvember 2012 08:00 Þorgerður Anna verður bókaormur á meðan landsliðið keppir á EM. Mynd/Ole Nielsen
Stórskyttan tvítuga Þorgerður Anna Atladóttir fer ekki með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu í desember. Hún dró sig út úr landsliðshópnum í gær. „Ég varð að draga mig úr vegna skóla. Ég er að fara að útskrifast úr framhaldsskóla um jólin og gat ekki fengið svör frá Ágústi þjálfara um hvort ég yrði í hópnum sem fer út fyrr en á mánudaginn," segir Þorgerður Anna en skólinn gat ekki beðið svo lengi eftir svörum. „Ef ég hefði farið út hefði ég þurft að taka lokapróf í næstu viku áður en ég fer út. Ég skil Ágúst vel að geta ekki svarað enda meiðsli í hópnum. Ég varð því að velja og valdi skólann að þessu sinni. Þetta er samt mjög leiðinlegt og ég hef verið með í maganum yfir þessu í langan tíma. Ég gat ákveðið að fara ekki en ég gat ekki ákveðið að fara. Þetta varð því miður niðurstaðan sem ég komst að." Þorgerður mun því einbeita sér að bókunum næstu daga en hún viðurkennir að það verði erfitt að fylgjast með liðinu úr sófanum. „Það verður örugglega ekki skemmtilegt. Ég mun fylgjast með spennt og hvetja þær áfram," segir Þorgerður sem hefur þegar tekið þátt í tveimur stórmótum þrátt fyrir að vera aðeins tvítug. „Ég get ekki kvartað yfir því að hafa þegar náð tveimur stórmótum. Það hafa ekki allir tvítugir leikmenn náð því. Ég á nóg eftir í handboltanum og á vonandi eftir að fá tækifærit til þess að fara á fleiri stórmót í framtíðinni," sagði þessi stórefnilega íþróttakona. Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari skar niður um þrjá leikmenn til viðbótar í gær. Framstúlkurnar Elísabet Gunnarsdóttir og Steinunn Björnsdóttir duttu út sem og Stjörnumarkvörðurinn Sunneva Einarsdóttir. Ágúst mun svo velja endanlegan EM-hóp á mánudag.
Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira