Snýst ekki síst um aðildarferlið sjálft 9. október 2012 00:00 Samningamaðurinn Aleksandar Pejovic fer fyrir samningahópi Svartfellinga við ESB. Hann segist geta lært mikið af reynslu Íslands. Fréttablaðið/VAlli
Aðildarferlið að Evrópusambandinu (ESB) nýtist Svartfellingum vel og þeir geta lært mikið af reynslu Íslands í aðildarviðræðunum við ESB. Þetta segir Aleksandar Pejovic, aðalsamningamaður Svartfjallalands í ESB-viðræðunum, í samtali við Fréttablaðið. Hann var hér á landi undir lok síðustu viku þar sem hann hitti fyrir bæði utanríkisráðherra, fulltrúa samninganefndar Íslands og fleiri sem koma að viðræðunum. Pejovic segir margar ástæður liggja að baki því að Svartfjallaland, sem hefur einungis um 650.000 íbúa, sæki um aðild að ESB. Í fyrsta lagi sé það von um bætt lífskjör almennings og betri viðskiptatengsl. Hann bætir því við, aðspurður, að smæð landsins þurfi ekki að fæla frá aðild. „Í síðustu stækkunarlotum, þar sem smáríki eins og Malta og Kýpur hafa komið inn, sannast að þau geta haldið sínum sérkennum og búa ekki við ofríki stærri ríkja. Eftir því sem smærri ríkjum fjölgar í ESB er auðveldara að koma sinni stefnu á framfæri,“ segir hann. Aðaláskoranir Svartfjallalands eru, samkvæmt úttekt framkvæmdastjórnar ESB, tengd löggæslu og dómsmálum. Pejovic tekur undir það. Ástandið á Balkanskaga hafi lengi einkennst af upplausn þar sem réttarríkið og aðrar stofnanir hafi veikst mikið og ríkin eigi enn mikið starf óunnið. Spurður hvað Svartfellingar hafi að bjóða segir Pejovic að það sé margvíslegt. „Okkar trú er að Balkanlöndin geti, með aðild að ESB og NATO, öðlast meiri stöðugleika út frá öryggissjónarmiðum ESB og þannig leyst úr okkar vandamálum og tekið upp eðlileg samskipti við nágrannaríkin,“ segir hann og bætir því við að menningararfleifð og gildi Svartfjallalands geti líka auðgað menningarflóru ESB. Svartfjallaland sótti um aðild að ESB árið 2008, en samningaviðræður hófust ekki formlega fyrr en í sumar. Pejovic segir þó enga óþolinmæði í þeirra ranni. Viðræður í nokkrum málaflokkum geti hafist eftir þrjá til fjóra mánuði en menn setji sér ekki tímaramma fyrr en rýniferlinu ljúki. „Ísland er þegar svo samræmt ESB að mörgu leyti að þið verðið síður vör við breytingar, en fyrir okkur hefur ferlið í för með sér margs konar nýjungar. Ferlið er því mun mikilvægara fyrir okkur en aðildin og við ætlum að nýta það til að auka lífsgæði landsmanna eins og við getum.“thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Sjá meira