Tugmilljóna sektir vegna trassaskapar 3. október 2012 06:00 Ekki hafa verið lagðar dagsektir á lóðina við Vesturgötu 64 og Seljaveg 2 vegna þess að úrbótum var lofað á fundi í vor. Eigandi Seljavegar hefur staðið við framkvæmdir en ekki eigandi Vesturgötu, og stendur því til að setja dagsektarferli í gang. fréttablaðið/valli
Dagsektir eru nú lagðar á sex hús í Reykjavík samkvæmt yfirliti sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík gerði fyrir skipulagsráð borgarinnar og var kynnt ráðinu á fundi á mánudag. Ákvörðun hefur verið tekin um beitingu dagsekta vegna þriggja húsa til viðbótar. Dagsektirnar nema í dag tæplega 32 milljónum króna, samkvæmt útreikningi Fréttablaðsins miðað við upplýsingar úr yfirliti byggingarfulltrúans. Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segir dagsektafyrirkomulagið hafa skilað tilætluðum árangri, þrátt fyrir að borgaryfirvöld hafi ekki gengið hart fram við innheimtu skulda. Hann tekur undir það að tölurnar séu háar og heildartalan hafi komið á óvart. Það sé hins vegar einfaldlega vegna þess að ástandið sé verra en það hefur löngum verið. Páll segir að umburðarlyndi gagnvart húseignum í niðurníðslu hafi verið ríkjandi eftir hrun, eðlilega. Hin hliðin á peningnum séu almannahagsmunir; niðurnídd hús skemmi út frá sér og geti einfaldlega verið hættuleg, eins og dæmin sanni. Eitt húsanna sem um ræðir er gamla borgarbókasafnið, Esjuberg, sem stendur við Þingholtsstræti 29a. Félagið Inn fjárfesting, sem er í eigu Ingunnar Wernersdóttur, á húsið og lóðina. Framkvæmdir þar hafa legið niðri í nokkur ár og var því ákveðið að leggja á dagsektir sem nú nema rúmum átta milljónum króna. Ingunn, lögfræðingur hennar og byggingarstjóri framkvæmdanna funduðu í ágúst síðastliðnum með byggingarfulltrúa borgarinnar og kom þar fram að framkvæmdir eigi að hefjast á ný á næstunni. Lögð verður fram tímaáætlun um framkvæmdirnar og verða dagsektirnar látnar falla niður þegar framkvæmdum lýkur. Næstmestu sektirnar hafa verið lagðar á húsið við Skólavörðustíg 40, tæpar sjö milljónir króna. Framkvæmdir eru hins vegar hafnar þar og hefur húsið verið rifið, en til stendur að byggja þar nýtt og stærra hús. Sektir voru lagðar á tvær lóðir við Langholtsveg í vor þar sem byggingarframkvæmdir hafa ekki verið kláraðar, en í báðum tilvikum var framkvæmdum hætt í október 2008. Samtals nema sektirnar nú 6,5 milljónum króna. Þá eru dagsektir á fjölbýlishúsi við Lindarvað vegna frágangs 1,4 milljónir króna. Þá eru dagsektir á húsi við Bólstaðarhlíð rúmar 8,8 milljónir króna, en það er vegna óleyfðra breytinga sem gerðar voru. - þeb / shá
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Sjá meira