Aðgerðir skólastjórnenda gegn einelti Svanhildur María Ólafsdóttir skrifar 21. september 2012 06:00 Í flestum ef ekki öllum skólum landsins er að finna stefnumótandi aðgerðaáætlanir eða forvarnir gegn einelti. Það að taka á einelti í skólum er á ábyrgð skólastjórnenda, en vinna þeirra að þessum málaflokki gleymist stundum, sérstaklega ef erfið eineltismál koma í samfélagslega umræðu. Því er ástæða til að skoða betur hvaða aðgerðir eru í gangi í skólum landsins. Það skal tekið fram hér, að skólar eru mislangt á veg komnir í baráttunni gegn einelti og hver skóli hefur sinn háttinn á. Eitt af því sem skólastjórnendur vinna með er að auka sýnileika eineltis. Það gera þeir með því að tala gegn einelti við sem flesta hópa. Þeir ræða þessi mál við nemendur, starfsmenn og foreldra en einnig við aðra aðila sem koma að uppeldi barnanna í nánasta umhverfi. Samvinna og samræða um málin er öllum til góðs og það að taka á málum með svipuðum eða sama hætti styrkir þau skilaboð að einelti sé ekki liðið í skólaumhverfinu. Skólastjórnendur vinna einnig að þessum málum í innra starfi skólans með því til dæmis að tilnefna verkefnisstjóra eða stýrihóp yfir stærri verkefnum sem falla til innan veggja skólanna þar á meðal eineltismálum. Það að einhver stýri í heild í hvaða farveg málum er komið, skiptir miklu og eykur líkur á að verkefnum sé sinnt áfram, en oft vilja „átaksverkefni“ renna smám saman út í sandinn. Skólastjórnendur fylgja áætlunum um einelti eftir með ýmsum leiðum. Í skólum má finna umræðuhópa hjá starfsfólki þar sem málin eru rædd, oft í upphafi skólaárs, en þá er áhrifaríkast að leiðrétta hegðun nemenda. Einnig ef eineltismál koma upp eða niðurstöður mælinga liggja fyrir. Margir umsjónarkennarar halda bekkjarfundi með nemendum þar sem markmiðið er jákvæð og uppbyggileg umræða með það að markmiði að fyrirbyggja einelti. Flestir ef ekki allir sem hafa áætlanir í gangi gegn einelti mæla árangurinn að minnsta kosti árlega. Í slíkri könnun er skoðað hvort einelti sé til staðar og hver afstaða umhverfisins er til eineltis. Mælingin bendir á hvar eineltið á sér stað og af hvaða tagi það er. Niðurstöðurnar sýna hvað er gert vel og hvar hægt er að bæta sig. Markmiðið er að sjálfsögðu að gera betur en síðast og niðurstöðurnar eru svo notaðar í áframhaldandi aðgerðir gegn einelti. Skólastjórnendur hafa sums staðar komið á einhvers konar eftirlitskerfi eða eineltisteymi sem vinna með niðurstöður mælinga og sjá um skráningar og úrvinnslu á eineltismálum. Virkt eftirlit skiptir öllu máli því það skapar öryggi og eflir samkennd. Það dregur úr einelti og eineltisaðstæðum og tekur á hegðunarerfiðleikum sem tengjast einelti bæði á beinan og óbeinan hátt. Þá má finna viðbragðsáætlanir þar sem fylgst er með nemendum og reynt að greina slæm samskipti sem fyrst og bregðast við þeim þegar þau koma upp. Öll mál þar sem grunur leikur á að einelti eigi sér stað eru sett í viðeigandi ferli, yfirleitt vísað í fyrstu til umsjónarkennara sem kannar málið. Það gerir hann með því að afla sér upplýsinga, tala við hlutaðeigandi aðila og upplýsa um mál sem þarf að fylgjast með. Með því er öryggi barnanna best tryggt og afskiptin í réttum farvegi. Margir skólastjórnendur halda kynningarfundi að hausti og bekkjarfundi með foreldrum þar sem þeir fá kynningu á stefnu og verkferla hvað varðar eineltismál. Niðurstöður mælinga eru svo kynntar þegar þær liggja fyrir. Góð samskipti við foreldra eru mikilvæg því engin úrvinnsla verður í eineltismálum nema í samvinnu við heimili barnanna. Af framangreindu má sjá að aðgerðir skólastjórnenda til að vinna bug á einelti eru margs konar og markmiðið er að einelti hverfi úr skólum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun