Stór mál frá síðasta þingi endurflutt 17. september 2012 06:00 Starf 141. löggjafaþings hófst á þriðjudag. Fjöldi mála hefur verið lagður fram, en þingið verður stutt í annan endann þar sem kosningar verða í vor.fréttablaðið/gva
Endurtekið efni verður á dagskrá Alþingis í vetur þegar mál sem ekki náðust í gegn á síðasta þingi verða rædd. Þingsályktunartillögur og lagafrumvörp hrúgast inn. Frumvarp um fiskveiðistjórnun og þingsályktunartillaga um Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Þetta eru þau mál sem setja munu, öðrum fremur, mark sitt á starf Alþingis í vetur. Hið sama var sagt þegar þau voru boðuð á síðasta þingi, en bæði eru því marki brennd að ekki náðist að klára þau í vor. Alþingi var sett á þriðjudag og fjárlög ársins 2012 voru lögð fram. Starfið hófst fyrr en áður, venjulega hefur þing ekki verið sett fyrr en 1. október. Ekki veitir af þar sem þingmanna bíður ærinn starfi við fjölda mála og ekki er í boði að draga þingstörf fram á sumar. Kosið verður til Alþingis í apríl. Náttúran og nýtinginSagan endalausa varðandi rammaáætlun heldur áfram. Vinna við hana hefur staðið yfir í rúman áratug og Katrín Júlíusdóttir, þáverandi iðnaðarráðherra, boðaði að með henni yrði deilan um hvort vernda ætti náttúrusvæði eða nýta þau til orkuöflunar leidd til lykta í eitt skipti fyrir öll. Annað hefur verið að skilja á Svandísi Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra. Hún hefur viðrað þá skoðun sína að ekki sé hægt að velja fyrir hönd komandi kynslóða hvort svæði verði virkjuð eður ei. Hún sagði í Fréttablaðinu á föstudag að ekki væri öruggt að svæði í nýtingarflokki yrðu nýtt. ?Varúðarsjónarmiðin hverfa ekki þó að Rammaáætlun sé lokið, þau verða til eftir sem áður. Það lá alltaf fyrir að þó að ákvörðun væri tekin um að virkjunarhugmynd færi í nýtingarflokk, þá væri sú ákvörðun ekki trygging fyrir því að viðkomandi svæði yrði nýtt. Það sem breytist við Rammaáætlun er að í stað þess að landið sé allt í nýtingarflokki, þá er það bara skilgreindur hluti þess.? Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn hyggist leggja fram þingsályktunartillögu um Rammaáætlun í vikunni. Þar verður lagt til að flokkunin verði óbreytt frá því sem sérfræðinganefnd lagði til. Það þýðir, til að mynda, að neðrihluti Þjórsár fer aftur í nýtingaflokk og Norðlingaalda úr verndarflokki. Ljóst er því að tekist verður á um einstök svæði í þingsal í vetur. Engin sátt um fiskveiðarLiður í samkomulagi um þinglok í júní var að unnið yrði að samkomulagi um stjórnun fiskveiða. Atvinnuveganefnd skipaði starfshóp um málið og eftir brotthvarf Þórs Saari úr honum sátu í honum þingmenn úr stjórnarflokkunum tveimur, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki. Fjórmenningarnir skiluðu af sér skýrslu sem innihélt grundvöll til sátta, þó ekki í stærstu ágreiningsmálunum eins og leigupottum og innköllun hluta aflaheimilda sem skipta um hendur. Samkomulag var um hvað ekki ætti að vera í lögum hvað þetta varðar, en ekki hvað ætti að koma í staðinn. Viðbrögð við skýrslu fjórmenninganna sýna að hún er trauðla grundvöllur sátta um málið. Stjórnarþingmenn hafa gagnrýnt hana mjög og sagt hana vinna gegn upphaflegum markmiðum frumvarpsins. Ólína Þorvarðardóttir bókaði á fundi atvinnuveganefndar: ?Verði þær breytingar á fiskveiðistjórnunarfrumvarpinu sem fjórmenningarnir hafa drepið á er ljóst að upphaflegt markmið með frumvarpinu – um jafnræði, atvinnufrelsi og nýliðunarmöguleika – yrði að engu. Væri þá verr af stað farið en heima setið með mál þetta í heild sinni.? Ekki verður því annað séð en að málefni fiskveiðistjórnunar séu á sama stað og þau voru í vor og allt sé í hnút.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sjá meira