Íslenska landsliðið hefur aldrei unnið tvo fyrstu leikina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2012 07:30 Mynd/Vilhelm
Íslenska karlalandsliðið getur náð sögulegum árangri á Kýpur í kvöld þegar liðið mætir heimamönnum í öðrum leik sínum í undankeppni HM í Brasilíu 2014. Með sigri verður liðið með fullt hús eftir tvo leiki sem hefur aldrei gerst áður í sögu Íslands í undankeppnum HM og EM. Þetta er fjórða undankeppnin sem íslenska landsliðið byrjar á sigri og í hin skiptin hefur íslenska liðið ekki fengið neitt út úr leik tvö. Það voru liðin sex ár síðan íslenska landsliðið vann sinn fyrsta leik í undankeppni en það gerði liðið á Norður-Írlandi 2. september 2006 undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar. Íslenska liðið skoraði þá þrjú mörk á fyrstu 38 mínútunum og vann 3-0 sigur. Fjórum dögum síðar komu Danir í heimsókn á Laugardalsvöllinn en öfugt við leikinn í Belfast þá voru úrslitin nánast ráðin eftir rúman hálftíma. Danir komust yfir eftir aðeins fimm mínútur, bættu við öðru marki á 33. mínútu og unnu að lokum með tveimur mörkum gegn engu. Sigurinn á Norðmönnum í Laugardalnum kom líka eftir langa bið eftir sigri í fyrsta heimaleiknum en því hafði íslenska landsliðið ekki náð í 22 ár, eða síðan liðið vann Albaníu 2-0 í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 1992. Íslenska liðið var líka á heimavelli í næsta leik í undankeppninni en sá leikur var reyndar spilaður þremur mánuðum síðar. Ísland tapaði þá fyrir Frökkum 1-2 eftir að hafa lent undir eftir aðeins tólf mínútur. Ísland hefur aðeins einu sinni unnið sinn fyrsta leik í undankeppni HM en fyrir 28 árum vann liðið 1-0 sigur á Wales í fyrsta leik í undankeppni HM í Mexíkó 1986. Mánuði síðast mætti íslenska liðið á Hampden Park og varð að sætta sig við 0-3 tap. Í öll þrjú skiptin hefur íslenska liðið því tapað eftir sigur í fyrsta leik og alltaf fengið á sig mark (eða jafnvel mörk) á fyrsta hálftímanum. Íslenska liðið er þegar byrjað að útrýma leiðinlegum hefðum undir stjórn Svíans Lars Lagerbäck og hver veit nema strákarnir afnemi þessa hefð á Kýpur í kvöld.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira