Það ruglar enginn neitt í mér Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. ágúst 2012 00:01 Kolbeinn Kárason í baráttunni fegn Fylkismönnum í sumar. Mynd/Ernir
Kolbeinn Kárason skoraði tvívegis í 4-0 sigrinum á Keflavík í 17. umferð Pepsi-deildar karla. Valur vann einnig 4-0 sigur í fyrri leiknum og virðist henta liðinu vel að mæta Bítlastrákunum af Reykjanesinu. „Lokatölurnar gefa rétta mynd af leiknum og við hefðum getað unnið enn stærri sigur að mínu mati. Ég man ekki eftir því að þeir hafi átt færi í leiknum og heldur ekki í fyrri umferðinni," segir framherjinn sem hefur skorað sjö mörk í deildinni og er á meðal markahæstu manna, aðeins 21 árs að aldri. Óhætt er að segja að skipst hafi á skin og skúrir hjá Valsmönnum í sumar. Nánast ríkir sú regla að liðið vinni og tapi leikjum til skiptis. Því væri margt vitlausara en að spá Hlíðarendapiltum tapi í leik liðsins á sunnudag gegn Stjörnunni. „Við ætlum að breyta þessu jójó-gengi okkar," segir Kolbeinn sem tók sér frí frá knattspyrnu að loknu sínu fyrsta ári í öðrum flokki. Þá var Kolbeinn 18 ára og segist hreinlega hafa fengið leiða á fótbolta. „Gunnlaugur Jónsson, sem þá þjálfaði Val, fékk mig til að mæta á æfingar aftur," segir Kolbeinn sem var í leikmannahópi Vals í síðasta leik Íslandsmótsins sumarið 2010. Síðan þá hefur hann æft af krafti undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar og Freys Alexanderssonar og ber þeim vel söguna sem og liðsfélögum sínum. „Það er stutt í húmorinn í Valsliðinu. Menn eru góðir vinir og fínasta stemning. Það eru einhverjir hrekkjarar í liðinu. Ásgeir Ingólfs og Kiddi (Kristinn Freyr Sigurðarson) og fleiri sem eru alltaf hver að stríða öðrum. Það er ekkert alvarlegt samt," segir Kolbeinn aðspurður um hvort leikmenn þurfi að vera varir um sig hver gagnvart öðrum í búningsklefanum. „Það er enginn samt að rugla neitt í mér," segir Kolbeinn léttur en framherjinn stæðilegi gat sér gott orð í hnefaleikum á sínum tíma. Hann hefur þó enga löngun til þess að ræða hnefaleikaferil sinn frekar. „Ég er fótboltamaður, ekki boxari," segir Kolbeinn.Lið 17. umferðarMarkvörður Ögmundur Kristinsson, FramVarnarmenn Arnór Eyvar Ólafsson, ÍBV Ármann Smári Björnsson, ÍA Alexander Scholz, Stjarnan Miðjumenn Finnur Ólafsson, Fylkir Tómas Leifsson, Selfoss Rúnar Már Sigurjónsson, Valur Einar Karl Ingvarsson, FH Sóknarmenn Kristinn Ingi Halldórsson, Fram Kolbeinn Kárason, Valur Garðar Bergmann Gunnlaugsson, ÍA
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira