Vilja brugga biskupabjóra 4. ágúst 2012 07:30 Hér eru þeir Bjarni Kristófer Kristjánsson og Broddi Reyr Hansen að skrafa yfir krúsum á barnum í Bjórsetrinu.
Árið 2007 var Bjórsetur Íslands sett á laggirnar á Hólum í Hjaltadal og síðan þá hefur starfsemi þess vaxið fiskur um hrygg. Nú er setrið komið með vínveitingaleyfi og bruggleyfi og oft er fjölmennt á vikulegum samkundum á barnum sem hefur verið komið fyrir í húsnæði sem áður var íbúð fjósamannsins á Hólum. Bjórinn sem bruggaður er á Hólum kallast Vesturfari en Bjarni Kristófer Kristjánsson, formaður setursins, segir að nú íhugi menn að brugga eins konar biskupabjór. „Þá mætti til dæmis brugga hveitibjór og kalla hann Guðmund góða,“ segir hann kankvís. „Þá væri líka alveg borðleggjandi að brugga dökkan og ramman bjór sem kalla mætti Gottskálk grimma. Þá kom það líka til tals að brugga svona enskt öl sem er rautt og þá færi vel á því að kalla það Jón Arason því þessi bjór er yfirleitt hauslaus. En við skulum sjá, við bíðum eftir því að það komi nýr biskup á Hóla og athugum þá hvort þessi hugmynd hljóti blessun.“ Bjarni Kristófer segir að takmarkið með setrinu hafi fyrst og fremst verið að drekka góðan bjór en segir það afar skemmtilegt hvernig það hefur greitt fyrir samneyti bænda og fræðimanna á svæðinu. Í september verður svo slegið til mikillar bjórveislu en þá verður hið árlega Hólasumbl haldið með pompi og prakt. Svo það verður kannski einhver hamagangur á Hólum.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira