Hélt oftar hreinu í ár en síðustu ár til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2012 06:00 Gunnleifur Gunnleifsson fagnar með félögum sínum í FH eftir lokaleikinn á móti Val. fréttablaðið/Daníel
Gunnleifur Gunnleifsson tók við Íslandsmeistarabikarnum á laugardaginn og það mátti sjá á viðbrögðum hans þegar titillinn var í höfn tveimur vikum fyrr að þar fór maður sem var búinn að bíða lengi eftir því að komast í tæri við þann stóra. Gunnleifur kom í FH fyrir tímabilið 2010 þegar FH-ingar voru búnir að vinna tvo Íslandsmeistaratitla í röð og fimm titla á sex árum. Gunnleifur leysti þá af Daða Lárusson, sem var búinn að vera aðalmarkvörður FH-liðins í níu sumur. Gunnleifur hafði árin á undan staðið sig frábærlega með liði HK og verið einn af lykilmönnunum í að koma liðinu upp í deild þeirra bestu. Nú var komið að því að spila með einum af stórum klúbbunum. Það gekk þó ekki allt eins og í sögu. FH-liðið þurfti að sætta sig við silfur tvö fyrstu ár Gunnleifs í Krikanum en hann fékk fyrirliðabandið í vor og þá kom sá stóri. Gunnleifur talaði sjálfur um að hann hefði verið að vinna sinn fyrsta alvöru Íslandsmeistaratitil, en hann á einnig verðlaunapening frá árinu 1999 þegar hann var varamarkvörður Kristjáns Finnbogasonar hjá KR og fékk að spila lokaleik mótsins þegar titillinn var í höfn. Gunnleifur hélt marki sínu samtals níu sinnum hreinu fyrstu tvö tímabil sín með FH en gerði einu betur í sumar. Gunnleifur hélt marki sínu nefnilega tíu sinnum hreinu í Pepsi-deildinni í ár og allir þeir leikir voru fyrir þá eftirminnilegu stund á Stjörnuvellinum 16. september síðastliðinn þegar FH-liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Gunnleifur er sá markvörður sem hélt oftast marki sínu hreinu á tímabilinu, en næstur kom Eyjamaðurinn Abel Dhaira sem náði því í átta leikjum. FH-ingar unnu sex af leikjum sínum 1-0 og þessi 18 stig vógu þungt í að liðið tók titilinn af KR-ingum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira