Áform um kalkþörungavinnslu 14. júlí 2012 02:00 Ef allt gengur að óskum verður slík vinnsla líka á norðanverðum Vestfjörðum innan nokkurra ára. fréttablaðið/jón Sigurður
Kalkþörungafyrirtækin Celtic Sea Minerals og Kalkþörungafélagið, sem nú þegar reka kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal, hafa uppi áform um að starfrækja aðra slíka verksmiðju á norðanverðum Vestfjörðum. Hafrannsóknastofnun rannsakar í framhaldinu kalkþörunganámur í Ísafjarðardjúpi og verði niðurstaðan jákvæð verður hafist handa við að koma verksmiðju á laggirnar. Að sögn Shirans Þórissonar, verkefnastjóra Vaxtarsamnings Vestfjarða, sem kemur einnig að verkefninu, er óvíst hvort verksmiðjan yrði í Bolungarvík, Ísafjarðarbæ eða Súðavík. „Það mikilvægasta er að þetta mun hafa jákvæð áhrif á þetta atvinnusvæði, það er að segja norðanverða Vestfirði,“ segir Shiran. Ef af verður munu skapast á bilinu tuttugu og fimm til þrjátíu og fimm störf við vinnsluna sem er sambærilegt við verkunina á Bíldudal. Shiran segir að rannsóknin geti tekið rúmt ár. „Þetta er langtímaverkefni sem getur orðið að veruleika eftir fjögur til fimm ár ef allt gengur að óskum í rannsóknum, umhverfismati og staðarvalsgreiningum,“ segir hann. „Það er allt í lagi, góðir hlutir gerast hægt.“ Talið er að kalkþörunganámurnar í Ísafjarðadjúpi séu um átta sinnum stærri en þær í Arnarfirði.- jse
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira