Búin að missa þau öll Erla Hlynsdóttir skrifar 4. október 2012 18:45
Kona sem var ólétt af fimmburum, og lét eyða tveimur fóstrum til að auka lífslíkur hinna þriggja, hefur nú misst öll fóstrin. Hún og eiginmaður hennar skrifa opinskátt á netið um um reynslu sína. Það vakti þjóðarathygli þegar Fréttatíminn greindi frá því í júní að par í Reykjavík ætti von á fimmburum, enda var þetta í fyrsta sinn sem þetta gerðist hér á landi. Konan var þá komin þrjá mánuði á leið og ráðlögðu læknar henni að láta eyða þremur fóstrum enda fimmburameðganga áhættusöm fyrir bæði móður og börn. Yfirlæknir á kvennadeild Landspítalans sagði þar í viðtali að fækkun á fóstrum feli í sér fimm prósenta áhættu á fósturláti fyrir þau fóstur sem eftir eru. Hætta á fósturláti í fimmburameðgöngu sé hins vegar meiri. Allir helstu miðlar landsins tóku málið upp og tóku margir einnig viðtal við hjónin. Þau tóku loks þá erfiðu ákvörðun að fækka fóstrunum í þrjú og var rætt við þau í Fréttatímanum um það í júlí. Hjónin héldu úti vefsíðu um meðgönguna og hafa þar skrifað um þá reynslu að missa fóstrin þrjú þegar þau voru um 22ja vikna gömul, eftir að legháls konunnar gaf sig. Þegar fréttastofa ræddi við hjónin í dag veittu þau góðfúslega leyfi til að fjalla um málið en þau treystu sér ekki í viðtal að svo stöddu. Þau eru nú á leið til Mexíkó, heimalands konunnar, til að vera með fjölskyldu hennar og reyna að ná áttum.Uppfært klukkan 22.07: Í fréttinni var áður missagt að fóstrin hafi verið 20 vikna gömul en þau voru í raun 22ja vikna gömul. Þá segir móðirin í samtali við fréttastofu að hún leggi áherslu á að talað sé um börnin hennar, en ekki fóstur.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Sjá meira