Innlent

Lánið var í erlendum myntum

Íslandsbanka vegna eftirstöðva gjaldfallins skuldabréfs í erlendri mynt. Krafan var svo lækkuð í 12,4 milljónir.
dómur hæstaréttar
Íslandsbanka vegna eftirstöðva gjaldfallins skuldabréfs í erlendri mynt. Krafan var svo lækkuð í 12,4 milljónir. dómur hæstaréttar
Húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt eru ekki ólögmæt gengistryggð lán. Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands þar að lútandi í máli hjóna sem tekið höfðu slíkt lán hjá bankanum.

Bankinn hafði höfðað mál á hendur hjónunum til greiðslu á eftirstöðvum gjaldfallins skuldabréfs, en deilt var um hvort lánið hefði verið í íslenskum krónum og gengistryggt með ólögmætum hætti, eða hvort það hafi verið í erlendum myntum.

Fram kemur í dómnum að með vísan til heitis skuldabréfsins, tilgreiningar lánsfjárhæðarinnar og vaxta auk fyrirsagnar skilmálabreytingar hafi verið fallist á með bankanum að lánið hefði verið í erlendum myntum.

Upphafleg greiðslukrafa bankans í mars 2010 hljóðaði upp á tæpar 22 milljónir króna. Bankinn breytti svo þeirri kröfugerð í þinghaldi fyrir Héraðsdómi Suðurlands rétt tæpu ári síðar í tæplega 12,4 milljónir króna. Um þá upphæð var ekki ágreiningur og hjónin því dæmd til að greiða hana með vöxtum.

Íslandsbanki áréttaði í tilkynningu í gær að húsnæðislán bankans í erlendum gjaldmiðlum og erlend lán með veði í íbúðarhúsnæði hafi verið endurreiknuð og þar með gengið lengra en lög frá Alþingi kvæðu á um.

Að fenginni þessari niðurstöðu Hæstaréttar nú væri ólíklegt að dómur Hæstaréttar frá 15. febrúar síðastliðnum í máli 600/2011 eigi við um húsnæðislán Íslandsbanka.

Í því máli hafði lán í erlendri mynt ekki verið í vanskilum og því talið að erlendir vextir lánsins ættu að gilda, en ekki vextir Seðlabanka Íslands.

„Íslandsbanki mun halda viðskiptavinum sínum vel upplýstum þegar búið er að yfirfara dóminn,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka í gær. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×