Innlent

Samstarf um norðurslóðamál

Stefán B. Sigurðsson og Jean-Charles Pomerol við undirskrift.
Stefán B. Sigurðsson og Jean-Charles Pomerol við undirskrift. mynd/ha
Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samstarf í rannsóknum á þriðjudag. Áhersla samstarfsins verður á norðurslóðamál.

Á þessu ári verður unnið að því að skilgreina nánar í hverju samstarfið felst og á hvaða sviðum en líklegt er að sjórinn og norðurslóðir verði þar fyrirferðarmiklar. Gert er ráð fyrir samstarfi í rannsóknarverkefnum og fjármögnun þeirra sem og fræðimanna- og nemendaskiptum. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×