Keldan, Vísir og Kauphöllin setja á fót ávöxtunarleik Magnús Halldórsson skrifar 24. maí 2012 10:15 Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, Freyr Einarsson, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, og Friðrik Guðjónsson, framkvæmdastjóri Keldunnar, skrifuðu undir samstarfssamning í húsakynnum Kauphallarinnar við Laugaveg. Vísir/valli
Keldan.is, Vísir.is og Kauphöllin hafa gengið frá samstarfssamningi um nýjan ávöxtunarleik, Leikinn, sem hýstur verður á keldan.is en innskráning mun fara fram á Vísir.is. Áætlað er að leikurinn hefjist snemma í haust og mun hann verða þátttakendum opinn að kostnaðarlausu. Markmiðið er að veita öllum áhugasömum um fjármál tækifæri til að fræðast um virkni íslenska markaðarins sem og hvernig skuli nálgast hann með upplýstum hætti svo hann geti nýst sem hluti af áformum um ávöxtun á sparifé. Í leiknum verður þátttakendum gefinn kostur á því að því að æfa sig í að halda utan um og ávaxta eignir sínar með viðskiptum í hlutabréfum og skuldabréfum skráðum á íslenska markaðnum; sjóðum og gjaldmiðlum, en einnig verður möguleiki á innlánum. Hver þátttakandi mun fá tiltekinn höfuðstól til að æfa sig í að halda utan um og reyna eftir fremsta megni að ávaxta spilapeninga sína sem best. Í tengslum við leikinn verður boðið upp á fræðsluefni um markaðinn og virkni hans, sem og faglega ráðgjöf. Hægt verður að bera ávöxtun eignasafnsins saman við árangur annarra þátttakenda, keppa í liðakeppnum og verða veitt vegleg verðlaun fyrir bestu ávöxtunina, sem nánar verða kynnt þegar leikurinn verður settur formlega í loftið á Vísi.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent