Mýrarnar álitlegar til að reisa vindorkuver 17. maí 2012 08:00 Sænsk vindmylla, sem sett var upp við bæinn Belgsholt í fyrrasumar, framleiddi rafmagn fyrir bæinn auk umframrafmagns sem selt var inn á Landsnetið. Myllan losnaði af mastrinu í vetur og hefur verið unnið að viðgerð. Mynd/Hannevind.Se
Vinnuhópur í Borgarfirði segir þróun í verði orkugjafa og í umhverfismálum fullt tilefni til að kanna nýtingu vindorku. Þrír staðir í Borgarbyggð eru sagðir koma til greina. Landsvirkjun segir Suðurland þó álitlegast fyrir vindorkuver. Vinnuhópur um nýtingu vindorku í Borgarbyggð segir fullt tilefni til að kanna hagkvæmni þess að nýta vindorku í sveitarfélaginu. „Fyrirséð er að kostnaður við nýtingu vindorku fer lækkandi frá því sem var á árum áður og mannvirkin verða sífellt öflugri og betri. Í ljósi hækkandi verðs á orkugjöfum á alþjóðamörkuðum og kröfum alþjóðasamfélagsins um að draga úr bæði staðbundinni loftmengun og losun gróðurhúsalofttegunda er fyrirséð að meiri áhersla verður lögð á umhverfisvænni orkugjafa í framtíðinni,“ segir í niðurstöðu vinnuhópsins sem skipað var í af stjórn Borgarfjarðarstofu í fyrrahaust. Meðal þess sem vinnuhópurinn gerði var að skoða 30 kílóvatta vindmyllu Haraldar Magnússonar í Belgsholti og ræða við sérfræðinga Landsvirkjunar um áform fyrirtækisins varðandi vindorku. Landsvirkjun hefur þegar gert vindmælingar á nokkrum stöðum og fundið út að Suðurland væri eitt álitlegasta svæðið ásamt svæðunum í kring um vatnsaflsvirkjanirnar við Búrfell og Blöndu. Við fyrrnefndu virkjunina er þegar hafin uppsetning á vindmyllum. Leitað var til Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings vegna hugsanlegs staðarvals fyrir vindmyllur í Borgarbyggð. Einar benti á fjögur mikilvæg atriði; meðalvindur þyrfti að vera nægur, vindur þyrfti að vera stöðugur, fjarlægð frá flutningskerfi Landsnets mætti ekki vera of mikil og í fjórða lagi þyrfti að huga að hæð vindorkuversins yfir sjávarmáli vegna hættu á ísingu. Einar nefndi þrjú svæði sem hugsanlega kosti með tilliti til ofangreindra forsendna. Hins vegar er ekki tekið mið af þáttum eins og hljóð- og sjónmengun og áhrifum á fuglalíf. Svæðin eru við Fíflholt á Mýrum, í öðru lagi með farvegi Hvítár og ofan Borgarness og síðan í Norðurárdal upp undir Holtavörðuheiði. Vinnuhópurinn segir það helst á færi stærri orkufyrirtækja að reisa stærri vindmyllur. Kæmi meðal annars til greina að staðsetja vindmyllu við Andakílsárvirkjun sem Orkuveita Reykjavíkur á. Varðandi minni vindmyllur setji strik í reikninginn að ekki séu þriggja fasa rafmagnslínur um alla Borgarbyggð. Þó sé stefnt að því að svo verði á aðalskipulagi sem gildi til ársins 2022. „Rekstur stórra vindorkuvera er líklega ekki vænlegur kostur á svæðinu eins og staðan er í dag en ýmsir möguleikar eru á rekstri minni vindorkuvera,“ segir vinnuhópurinn sem segir þörf á meiri undirbúningsvinnu áður en til framkvæmda komi. gar@frettabladid.is
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira