Telja lögfræðing Orkustofnunar vanhæfan 11. maí 2012 06:00 Skúli Thoroddsen
Skúli Thoroddsen, lögfræðingur Orkustofnunar, er vanhæfur til að fjalla um virkjanahugmyndir rammaáætlunar. Þetta er mat Guðmundar Harðar Guðmundssonar, formanns Landverndar, sem sendi þingmönnum í atvinnuveganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og Guðna A. Jóhannessyni orkumálastjóra bréf þess efnis í gær. Að mati Guðmundar hefur Skúli gert sig vanhæfan til að taka þátt í hlutlægri afgreiðslu Orkustofnunar um virkjanahugmyndir „með eindregnum yfirlýsingum um einstaka virkjanahugmyndir og virkjanamál almennt“, að því er segir í bréfinu. Þar er vísað til ummæla Skúla síðan í fyrravor, þar sem hann sagði meðal annars á heimasíðu sinni að mikilvægt væri að ríkið ýtti undir frekari virkjanaframkvæmdir, meðal annars í neðri hluta Þjórsár. „Þess vegna er enn mikilvægara að ríkisvaldið beiti sér sérstaklega fyrir stórátaki og þá dugir ekki bara stækkun álversins í Straumsvík, Búðarhálsvirkjun, kísilmálmverksmiðja í Helguvík, hreinkísilverksmiðja í Grindavík og natríumklóratverksmiðja á Grundartanga,“ ritaði Skúli á heimasíðu sinni. „Betur má ef duga skal. Nærtækasta og öflugasta verkefnið er enn og aftur álverið í Helguvík, en þá þarf að virkja í neðri hluta Þjórsár.“ Formaður Landverndar fer fram á að umsögn Orkustofnunar um rammaáætlun verði dregin til baka í ljósi þessa og að hún verði unnin af óhlutdrægu fagfólki stofnunarinnar.- sv
Mest lesið Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Erlent Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Innlent Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Innlent Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Innlent Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Innlent Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Erlent Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Erlent Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Innlent Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Erlent Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Innlent Fleiri fréttir Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Býður Sólveigu á fundinn og kannast ekkert við Virðingu Töldu ekki skilyrði fyrir varðhaldi yfir grunuðum barnaníðingi Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Fara yfir gögnin en úttekt Viðskiptaráðs sé „skoðun hagsmunaaðila“ Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Hvetja ráðherra til að mæta ekki á fund veitingamanna Bátar sviptir haffærisskírteini og Kourani sækir um náðun Lögreglan leitar manns Á annað hundrað báta óhaffærir vegna ófullnægjandi skoðunar Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Efnisneysla á Íslandi dregst saman en nemur yfir sextán tonnum á mann Um tvö hundruð á ári á gjörgæslu vegna lífshættulegrar sýkingar „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Fór inn á heimili, klæddi sig úr fötunum og sofnaði í stól 3,9 stiga skjálfti í Bárðarbungu Raunvirði íbúða lækkar á ný Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Biðla til fólks að taka vel á móti sölumönnum þó svikahrappar séu á ferð Sjá meira