Flytur á Hrafnistu ef hún fær svítu 9. maí 2012 09:00 Þórdís Hreggviðsdóttir var algerlega grunlaus um hátíðlega athöfn henni til heiðurs í gær eftir 45 ára starf hjá Hrafnistu. Þórdísi voru færð blóm og þriggja vikna ferð til Benidorm. Fréttablaðið/Valli „
Geðshræringin var svo mikil að sjá allt þetta fólk að ég brast bara í grát,“ segir Þórdís Hreggviðsdóttir sem í gær hlaut viðurkenningu fyrir störf sín á Hrafnistu síðustu 45 árin. Þórdís hóf störf á Hrafnistu þegar hún átján ára gömul missti vinnuna í mjólkurbúð sem lögð var niður. „Mér var bent á að sækja um á Hrafnistu og ég gerði það, var ráðin á staðnum og mætti daginn eftir,“ segir Þórdís sem ekki leist nema í meðallagi vel á blikuna til að byrja með. „Fyrsta daginn var ég sett inn á stofu með fjórum köllum sem ég átti að þrífa og raka. Þá féllust mér dálítið hendur.“ Fyrstu þrjú árin starfaði Þórdís við ummönnun en síðan við framreiðslu í borðsal. Hún var algerlega grunlaus þegar hún var við störf í gær og var veitt viðurkenning fyrir ævistarfið. „Enginn kjaftaði af sér allan daginn svo ég hafði ekki hugmynd um þetta,“ segir Þórdís sem auk þess að fá fallegan blómvönd fékk gjafabréf upp á þriggja vikna sólarlandaferð til Benidorm. Þótt Þórdís hafi starfað á Hrafnistu í 45 ár er hún aðeins 63 ára. „Maður heldur áfram á meðan heilsan leyfir og á meðan þeir vilja hafa mig,“ segir hún. Aðspurð kveðst Þórdís ekki viss um hvort hún sjálf flytji inn á Hrafnistu í fyllingu tímans. „Kannski, ef ég fæ svítu þegar ég hætti!“- gar
Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Innlent Fleiri fréttir Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Sjá meira