Ekki fenginn til að framkalla einhver kraftaverk Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. mars 2012 06:00 Einar er kominn aftur í úrvalsdeildina. Hann er hér í leik með Flensburg gegn Ciudad Real. Mynd/Vilhelm
Það verður seint sagt að lukkan hafi leikið við örvhentu sleggjuna Einar Hólmgeirsson á atvinnumannaferlinum. Hann hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarin ár og lék sinn síðasta handboltaleik fyrir ellefu mánuðum. Þá héldu allir að ballið væri búið hjá Einari. Svo er nú aldeilis ekki því hann fær tækifæri út þessa leiktíð til þess að sanna sig hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Magdeburg, sem Björgvin Páll Gústavsson leikur með. „Við verðum að sjá til hvernig þetta endar. Ég er í ágætu standi en það hefur ekkert reynt almennilega á það. Þeir hafa engu að tapa og ekki ég heldur og því látum við reyna á þetta," sagði Einar en hann skrifar í dag undir samning sem gildir til loka leiktíðar. Fínasta afmælisgjöf en Einar varð þrítugur í gær. Aðalskytta Magdeburg er meidd og verður frá fram að jólum. Sá er leysir hann af hefur átt í meiðslum og því vantaði Magdeburg mann. „Eftir fyrstu æfinguna spurðu þeir hvort ég gæti spilað á laugardaginn. Ég hef lítið annað að gera þannig að ég var til," sagði Einar sem hefur verið að æfa með 3. deildarliði síðan í janúar. Hann ætlaði að reyna að komast að hjá liði í janúar en varð að slá því á frest þar sem vinstra hnéð var skorið upp í október. Það var í fjórða skiptið sem hann er skorinn upp á því hné. „Þjálfarinn veit hvernig ég er og að ég þarf örugglega mínar hvíldir. Ég er fenginn til að leysa hinn af. Ég á ekki að framkalla einhver kraftaverk hérna. Sleggjan er smá ryðguð en það þarf aðeins að pússa hana upp. Ég veit ekki alveg hvar ég stend og renni frekar blint í sjóinn." Einar gerir sér grein fyrir því að ef vel gangi gætu opnast dyr fyrir hann í framhaldinu. Það á svo eftir að koma í ljós hvernig skrokkurinn heldur. „Ef vel gengur má vel vera að þeir vilji framlengja fram að jólum. Maður veit það ekki. Þetta er tækifæri fyrir mig til þess að sanna að ég get enn spilað."
Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira