Tuttugu pósthúsum lokað frá árinu 1998 5. mars 2012 15:00 Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, fundaði í vikunni með forsvarsmönnum íbúasamtaka í Breiðholti sem mótmæltu lokun pósthúss Íslandspósts í Mjódd.Fréttablaðið/Stefán
Með lokun pósthúss Íslandspósts í Mjódd hefur Íslandspóstur lokað 21 pósthúsi frá stofnun félagsins árið 1998. Pósthúsið er jafnframt það fimmta sem lokað er á höfuðborgarsvæðinu. „Til að leita lausna á landsbyggðinni hefur Íslandspóstur einnig farið í samstarf með 38 aðilum um póstþjónustu á ákveðnum svæðum, svo sem Landsbankanum, sparisjóðum og kaupfélögum,“ segir í tilkynningu Íslandspósts í gær. Lokun pósthússins í Mjódd hefur verið mómælt af íbúasamtökum í Breiðholti og hafa þau notið stuðning Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa, en hann hefur lýst fyrirætlunum um að kæra til úrskurðarnefndar heimild Póst- og fjarskiptastofnunar til Íslandspósts til að loka pósthúsinu. Með tilkynningu sinni í gær vildi Íslandspóstur árétta að erfiðleikar í rekstri skýri ákvörðun um lokun. Á sama tíma og upplýst var um þá fyrirætlan að loka pósthúsinu í Mjódd birti Íslandspóstur uppgjör fyrir síðasta ár, en tap félagsins á árinu 2011 nemur 144,3 milljónum króna. Árið 2010 skilaði fyrirtækið hins vegar tæplega 93 milljóna króna hagnaði. Tekjur fyrirtækisins námu rúmum 6,5 milljörðum króna í fyrra, jukust um þrjú prósent milli ára. Í tilkynningu um uppgjör ársins kemur fram að grípa þurfi til frekari hagræðingaraðgerða. Þannig horfi stjórn og stjórnendur Íslandspósts til frekari hagræðingar sem megi og þurfi að ná „með auknum sveigjanleika í afhendingartíma bréfa og breytingum á reglum um staðsetningu bréfakassa“. Í tilkynningu félagsins í gær kemur jafnframt fram að auk fækkunar á dreifingardögum og færslu póstkassa út að lóðarmörkum, sé horft til verðhækkana og annarra breytinga á þjónustustigi. Íslandspóstur hefur upplýst að bréfasendingar hafi dregist verulaga saman á undanförnum árum. Þannig hafi einkabréfasendingum fækkað um 30 prósent frá árinu 2006. „Spáð er áframhaldandi magnminnkun og er áætlað að bréfamagn muni minnka enn um allt að 16 prósent til ársins 2015,“ sagði í uppgjörstilkynningu. Eins var bent á að reglur um bréfadreifingu kvæðu á um dreifingu í öll hús alla virka daga ársins, þar sem því verði við komið. „Og nær sú þjónusta til 99,8 prósenta heimila og fyrirtækja á landinu.“ Almennar kostnaðarhækkanir vegna launa- og verðlagsþróunar eru sagðar hafa leitt til hækkunar á föstum kostnaði. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira